Stjórnarmaður hjá NRA kennir presti um fjöldamorðið í Charleston

Stjórnar­maður hjá Lands­samtökum skotvopna­eigenda í Banda­ríkjunum (NRA) kennir afstöðu prestsins í kirkjunni í Charlestone til almennrar byssu­eignar, um fjölda­morðið sem átti sér þar stað á miðvikudaginn. Margir helstu frétta­miðlar vestan hafs greina frá málinu, þeirra á meðal Quartz.

Hinn 21 árs Dylann Storm Roof hóf fyrirvara­laust skothríð í kirkjunni og myrti níu manns, en allir þeir sem féllu voru svartir og er ódæðið rakið til kynþátta­haturs. Samkvæmt frásögn vitna sagði Roof er hann endurhlóð byssuna sína meðan á hryðju­verkinu stóð: „Ég verð að gera þetta. Þið nauðgið konunum okkar og eruð að taka yfir landið okkar. Og þið verðið að fara.“

Segir prestinn eiga sinn þátt í sökinni


Roof er í haldi lög­reglu og á yfir höfði sér dauða­refs­ingu verði hann fund­inn sekur um hroða­verkið. Byssan sem Roof not­aði til að fremja fjöldamorðið hafði hann keypt sér fyrir afmæl­is­pen­inga frá fjöl­skyldu hans.Á meðal hinna myrtu var Clementa C. Pinckney, sem var prestur kirkj­unnar umræddu og öld­unga­deild­ar­þing­maður fyrir ríki Suður-Karólínu.

NRA hafa ekki sent frá sér neina formlega yfir­lýsingu vegna skot­árásarinnar, en stjórnar­maður hjá samtökunum, Charles Cotton, lét málið til sín taka á spjall­þræði um skotvopn eftir voða­verkið. Þar sagði hann um prestinn sem var þá nýlátinn: „Hann kaus gegn vopna­burði. Átta sóknar­börn hans væru mögulega enn á lífi ef hann hefði ekki verið á móti því að leyfa fólki að hafa með sér skotvopn til kirkju. Saklaust fólk lét lífið vegna pólitískra skoðana hans.“

Pinckney hafði í tíð sinni sem öldunga­deildar­þingmaður talað fyrir strangari laga­setningum er varða hertari skilyrði til byssu­kaupa til handa almenningi. Þá kaus hann gegn laga­frumvarpi í Suður-Karólínu sem kvað á um leyfi til að bera vopn innanklæða á veitinga­stöðum sem veita áfengi. Samkvæmt lögum ríkisins er óheimilt að taka með sér skotvopn til kirkju.

Kunnuglegur málflutningur


Nokkrum klukku­stundum áður en Cotton lét ummælin falla á áður­nefndum spjall­þræði hafði Barack Obama Banda­ríkja­for­seti brugð­ist við myrkra­verk­inu með því að kalla enn á ný eftir hert­ari lögum til að hefta almenna útbreiðslu skot­vopna í land­inu.

Málflutningur Cotton um rétt fólks til sjálfs­varnar er keimlíkur þeim sem þrýsti­hópurinn, sem hann tilheyrir, hélt á lofti eftir að tuttugu börn voru skotin til bana árið 2012 í Sandy Hook grunn­skólanum í Connecticut. Kannski væri ráð að vígbúast í skólum og kirkjum landsins til að geta tekið til varna.

Lands­samtök skotvopna­eigenda í Banda­ríkjunum hafa hins vegar brugðist við ummælum stjórnar­mannsins og sagt að hann tali ekki fyrir hönd samtak­anna, heldur beri einn ábyrgð á orðum sínum. Þá hafa ummæli Cotton verið fjarlægð af áður­nefndum spjall­þræði um byssueign í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár