Michel Platini staðfestir framboð til forseta FIFA

Michel Platini, forseti knattspyrnu­sambands Evrópu (UEFA), hefur staðfest að hann muni bjóða sig fram til embættis forseta Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins (FIFA).

Platini tilkynnti þetta rétt í þessu, en hann sendi bréf á forseta og aðal­ritara allra knattspyrnu­sambanda með aðild að FIFA. Hann segist ætla að hlusta á alla og virða ólík sjónarmið um knatt­spyrnu víða um heim. Hann segist ætla að sjá til þess að FIFA snúi við blaðinu og endur­skoði stjórnar­hætti sína.

Sepp Blatter, núverandi forseti FIFA, hefur tilkynnt að hann muni ekki bjóða sig fram á nýjan leik. Hann boðaði til nýrra kosninga um forseta­embættið í byrjun júní, fjórum dögum eftir að hann var endur­kjörinn. Spillingarmál gegn stjórn­endum FIFA eru nú til rann­sóknar í Banda­ríkjunum og Sviss.

Kosið verður um nýjan forseta FIFA þann 26. febrúar næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár