Kjarninn mælir með: Hlaðvörpin, kröfuhafar og hrikaleg morð

Við lifum sögulega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlendis. Ritstjórn Kjarnans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjallanir sem að mati ritstjórnar eru vandaðar, áhuga­verðar og skemmtilegar, hver með sínum ólíka hætti.

Hlaðvörpin hafa slegið í gegnum...hljóðlega


Hlaðvörp (Podcasts) hafi notið vax­andi vin­sælda um allan heim, en þau eru samt umdeild. Það eru ekki allir sem hafa náð því hvað það er gott, að hlusta gott hljóð­efni hvar sem er í sím­anum. Vin­sældir þessa skemmti­lega forms, sem Kjarninn hefur meðal ann­ars sinnt með fjöl­breyti­legu efni, fara samt vax­andi.

New York Times fjallaði skemmtilega um þetta form í dag, og hvernig hlaðvarps­þátturinn Serial, sem fjallar um raun­veruleg glæpamál, náði almanna­hylli. Þá virðast auglýsendur vera að kveikja á því að hlað­varpið bjóði upp á djúpa upplifun.

Vönduð og flott umfjöllun.

Kröfuhafar halda Grikkjum í gíslingu


Kröfu­hafar og lán­veit­endur Grikkja hafa ekki viljað sýna neinn sveigj­an­leika, þegar kemur að því að semja um skuld­bind­ingar Grikkja. Í umfjöllun Wall Street Journal í dag kemur fram að emb­ætt­is­menn Evr­ópu­sam­bands­ins hafi fundað um stöðu mála í Lúx­em­borg, og sett frek­ari þrýst­ing á grísk stjórn­völd um að semja við kröfu­hafa lands­ins á grunni áætl­unar sem sam­þykkt var árið 2012, en heild­ar­stærð þess lána­pakka er um 240 millj­arðar evra.

Vönduð viðskipta­umfjöllun um mikilvæg mál.

Hrikaleg morð í Charleston - Hvað bjó að baki?


Níu létu lífið í skotárás á Emanuel AME kirkj­una í Charleston í gær, en lög­reglan hand­ótk í gær Dylan Storm Roof, 21 árs gamlan mann, vegna árás­ar­innar. Hún náð­ist á mynd­band en allir sem lét­ust voru svartir, og þykir margt benda til þess að kyn­þátta­hatur hafi verið það sem bjó að baki árásinni, að sögn Quartz.

Nákvæm og góð lýsing á atburðunum hjá Quartz.


"He will be humanized and called sick. That is the power of whiteness in America." @antheabutler on Charleston: https://t.co/4982cpKyaI


— Mike Madden (@MikeMadden) June 18, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár