Verðbólga mælist 0,2 prósent á evrusvæðinu - Atvinnuleysi veldur áhyggjum

Verðbólga mælist nú 0,2 prósent á evru­svæðinu og helst sú sama milli mánaða, byrjun júní til lok júlí, samkvæmt hagtölum sem Eurostat, hagstofa Evrópusambandins, sendi frá sér í gær. Orkuverð lækkaði um 5,6 prósent á mælingar­tímanum en matur, alkóhól og tóbak hækkaði um 0,9 prósent.

Atvinnu­leysi mælist nú að meðaltali 11,1 prósent á evru­svæðinu og stendur í stað frá síðustu mælingu. Samkvæmt frétt breska ríkis­útvarpsins BBC veldur hægur bati á vinnu­markaði Evrópu áhyggjum á markaði og þykir fátt benda til þess að atvinnu­leysi sé að minnka, að því er haft er eftir James Howat, hagfræðingi hjá Capital Economics.

Atvinnu­leysið er mest í Suður-Evrópu, einkum Spáni, Portúgal, Ítalíu og Grikk­landi, en þar mælist það yfir 20 prósent að meðaltali. Verst er staðan hjá ungu fólki, á aldrinum 18 til 30 ára, en hjá þessum hópi er atvinnu­leysi að meðaltali yfir 35 prósent í fyrr­nefndum ríkjum.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár