Fjöldi árása í Tyrklandi

Mörg ofbeldis­verk hafa verið framin í Tyrklandi í dag, í átökum milli öryggis­sveita Tyrkja annars vegar og hermanna Kúrda hins vegar. Í héraðinu Sirnak lést einn hermaður þegar þyrla var skotin niður og fjórir lögreglu­menn létust í sprengju­árás á svæðinu Silopi í sama héraði. Í Istanbúl hófu tveir einstaklingar skothríð fyrir utan ræðis­skrifstofu Banda­ríkjanna, örfáum klukku­stundum eftir að sprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð í borginni í nótt. Enginn meiddist í árásinni fyrir utan ræðis­skrif­stofuna en þrír lögreglu­menn og sjö óbreyttir borgarar slösuðust þegar sprengjan sprakk. The Guardian og BBC greina frá.

The Guardian birtir myndband frá lögreglu­stöðinni þar sem hópur fólks safnaðist saman, eftir að sprengjan sprakk.

Spenna milli Tyrkja og Kúrda hefur farið stig­vaxandi.Vopnahléi í lang­varandi illdeilum virðist hafa lokið í síðasta mánuði, þegar Tyrkir hófu sprengju­árásir á búðir Verkamanna­flokks Kúrda (PKK) í norður­hluta Írak, á sama tíma og Tyrkir hófu loft­árásir gegn herliðum Íslamska ríkisins (ISIS). Í kjölfar árasanna í dag réðist tyrkneski herinn að skot­mörkum PKK í Írak í hefndar­skyni, að því er segir í umfjöllun BBC.

Foringi PKK hefur sakað Tyrki um að vernda ISIS með árásum á kúrdneska hermenn en Kúrdar hafa barist gegn framgangi Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi með árangri. Tyrkland, og fleiri vestræn lönd, telja PKK aftur á móti vera hryðjuverka­samtök.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár