Maður og kona giftast í Svíþjóð - gagnrýni vinsamlegast afþökkuð

Þetta hljómar eins og handrit að kvikmynd. Ungur maður situr á kaffihúsi með vini sínum þegar tvær konur ganga framhjá. Sú fyrri þekkir vininn en hin horfir feimnis­lega á unga manninn sem starir á móti og heilsar vandræða­lega. Þetta var ást við fyrstu sýn og síðan þá hafa þau verið óaðskiljanleg – prinsinn og almúga­stúlkan. Auðvitað hlaut þetta að vera prins því annars væri sagan ekki jafn góð og auðvitað er hún húðflúrað nektar­módel sem hefur tekið þátt í raun­veruleika­þætti. Nú vantar bara Juliu Roberts í hnéháum leður­stígvélum í aðal­hlutverkið, já eða einhverja yngri því Julia er komin langt fram yfir síðasta söludag.

Stundum er raun­veruleikinn furðulegri en kvikmynd eða kannski eru það bara fjöl­miðlarnir sem gera ósköp eðlilega sögu að einhverri sýningu. Í gær kvæntist Karl Filippus, Svíaprins, unnusti sinni Sofiu Hellqvist á björtum og fallegum sólardegi í Stokk­hólmi. Hann er þriðji í röðinni að krúnunni á eftir systur sinni Viktoríu krónprinsessu og dóttur hennar Estelle.

Eins og venjulega þegar um er að ræða stóra atburði í konungs­fjöl­skyldunni var margra klukku­tíma bein útsending í sænska sjón­varpinu og dagblöð og tímarit hafa verið full af fréttum af undir­búningnum síðustu daga og vikur. Talið er að brúðkaupið kosti um 10 milljónir sænskra króna eða rétt tæplega 160 milljónir íslenskra, en þar af er beinn kostnaður skatt­greiðanda aðeins litlar fjórar milljónir sænskra, sem þykir víst vel sloppið. Ein af þessum milljónum fellur reyndar á lögregluna vegna kostnaðar við löggæslu, sem er aðeins brot af þeim 17 milljónum sem lögreglan þurfti að punga út vegna brúðkaups Viktoríu fyrir nokkrum árum.

Brúðhjónin láta vel hvort að öðru í vitna viðurvist. Mynd: EPA

Goðsögnin um jákvæð áhrif og fleiri ferðamenn


Þegar rætt er um kostn­að­inn við brúð­kaupið og reyndar kon­ungs­fjöl­skyld­una alla eru stuðn­ings­menn hennar fljótir að minn­ast á þau jákvæðu áhrif sem hún hefur á ferða­mennsku og ímynd Sví­þjóðar. Visit Sweden er eins konar Íslands­stofa Svía og þar vilja menn meina að brúð­kaupið hafi góð áhrif á allt mark­aðs­starf. Fram­kvæmda­stjór­inn sagði í við­tali við SVT að ferða­menn kaupi vörur og þjón­ustu fyrir um 100 millj­arða sænskra króna á ári og að fleiri gestir þýði auknar tekjur. Hann pass­aði sig reyndar á því að nefna aldrei beinar tölur í sam­bandi við brúð­kaupið enda skutu þeir langt yfir markið í spá­dómum sínum fyrir brúð­kaup krón­prinsessunnar.

Brúðhjónin láta vel hvort að öðru í vitna viðurvist. Mynd: EPA
Brúð­hjónin láta vel hvort að öðru í vitna við­ur­vist. Mynd: EPA

Þá var mikið rætt um það hversu góð áhrif brúðkaupið myndi hafa á ferðamanna­iðnaðinn og auknar tekjur fyrir fyrirtæki í Stokk­hólmi. Þegar árið var gert upp kom í ljós að það var engin aukning í kringum brúðkaupið og að meintur hagnaður var nánast upp á krónu sá sami og á venju­legum laugar­degi í borginni.

Engu að síður mátti lesa fréttir í gær um mann­fjöldann sem safnaðist saman og beið þess að sjá brúðhjónin aka frá kirkjunni að höllinni þar sem veislan var haldin. Fólk mætti snemma til að ná bestu stöðunum og innan um heimamenn mátti sjá hressa Finna sem þurfa víst að láta sér nægja þjóð­kjörinn forseta. Þegar fréttirnar eru lesnar er auðvelt að álykta sem svo að töluvert stór hópur hafi safnast saman og að þúsundir hafi fyllt göturnar til að hylla brúðhjónin. En það var bara ekki þannig.

Þegar sá sem þetta skrifar gekk framhjá konungs­höllinni um það leyti sem athöfnin hófst var ekki hægt að sjá að fleira fólk væri á ferli en á venju­legum sólardegi í Stokk­hólmi. Og þótt fólk hafi staldrað við og fylgst með hestvagni brúðhjónanna virtust flestir á leið inn í H&M eða aðrar búðir.

Klappað í kirkjunni


Brúð­hjónin hafa verið opin og ein­læg í við­tölum og óhrædd að sýna ást sína á opin­berum vett­vangi. Athöfnin sjálf var því nokkuð ólík hefð­bundnum kon­ung­legum brúð­kaupum því parið var ákveðið í að gera athöfn­ina per­sónu­lega. Helst var það tón­list­ar­valið sem kom á óvart, meðal ann­ars sænskar útgáfur af Coldplay lag­inu Fix You og lag­inu Umbrella með Rihönnu en það vakti óskipta athygli þegar gospel­söngv­ar­inn Samuel Ljung­blahd bað fólk um að klappa með í lag­inu Joyful Joyful.

Veislan um kvöldið þótti einnig óvenju afslöppuð. Prinsinn hélt fallega ræðu þar sem hann sagði að það krefðist hugrekkis að velja ástina þótt vegurinn væri grýttur og Sofia samdi ljóð til brúðgumans sem flutt var af þekktum tónlistar­mönnum í veislunni. Kvöld­verðinum lauk um ellefu en þá tók við veisla fram á nótt og var sérstak­lega tekið eftir því að konungs­hjónin fóru ekki úr partýinu fyrr en um hálfsex um morguninn. Af myndum má ráða að fólk hafi skemmt sér vel og meðal annars mátti sjá Silvíu drottningu á sviðinu þykjast syngja í míkrafón eins og fólk gerir í góðum veislum.

Húðflúr og naflahringur


Eins og minnst var á hér að framan er for­tíð Sofiu ekki beint hefð­bundin fyrir prinsessu. Hún vakti fyrst athygli á sér þegar hún var kjörin ung­frú Slitz árið 2004 af les­endum brjósta­blaðs­ins en þar sat hún ber­brjósta fyrir á myndum með stórri slöngu. Árið síðar tók hún svo þátt í raun­veru­leika­þætt­inum Paradise Hotel sem helst virð­ist ganga út á að láta ungt fal­legt fólk líta út fyrir að vera enn vit­laus­ara en það er.

Þegar Sofia og Karl tóku að stinga saman nefjum urðu margir ákaflega hneykslaðir, ekki bara út af myndunum, heldur líka út af nafla­hring og húðflúrum verðandi Svía­prinsessu. Það tók líka nokkuð langan tíma að fá samþykki konungs­fjöl­skyldunnar og til þess að prinsinn fengi að kvænast Sofiu þurfti konungurinn faðir hans að veita til þess formlegt leyfi.

Fjöl­miðlar hafa skilmerki­lega fjallað um kröfur konungs­fjöl­skyldunnar varðandi nafla­hringinn sem skyldi fjar­lægður fyrir brúðkaupið. Enda ganga prinsessur ekki um með hringi í naflanum eins og allir vita. Hins vegar var erfiðara að ráða við húðflúrin sem eru ekki bara eitt og ekki tvö og mátti meðal annars sjá eitt þeirra þegar brúðurinn tók af sér slæðuna. Sofia segist ekki skamma sín fyrir fortíðina. Hún hafi lært af þessu og vilji nú einbeita sér að góðgerðar­störfum og því að gera prinsinn að hamingju­samasta manni í heimi.

Konunglegu brúðhjónin heilsa upp á mann­fjöldann. Mynd: EPA

Hefðbundin blaðamennska tekur sér frí vegna brúðkaups


Umræðan um kon­ungs­fjöl­skyld­una er nokkuð klofin í Svíþjóð. Annars vegar eru þeir sem telja hana mik­il­vægt sam­ein­ing­ar­tákn og nauð­syn­legan hluta af sögu lands og þjóðar, en hins vegar þeir sem skilja ekki hvaða hlut­verki hún gegnir í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi nútím­ans. Kon­ung­leg brúð­kaup ættu að vera kjörin tæki­færi til að ræða þetta hlut­verk enda leggst stór hluti útgjald­anna á skatt­greið­endur.

Konunglegu brúðhjónin heilsa upp á mannfjöldann. Mynd: EPA
Kon­ung­legu brúð­hjónin heilsa upp á mann­fjöld­ann. Mynd: EPA

Hins vegar er eins og hefð­bundin blaða­mennska falli niður þessa daga og vikur og gagnrýnis­raddir fá lítið pláss. Rithöfundurinn Jan Guillou orðar það þannig í vikulegum pistli að vitræn umræða fari í leyfi við konungleg brúðkaup. Vissulega má samfagna brúðhjónunum enda völdu þau sér ekki foreldra. Það breytir því þó ekki að það eina sem gerðist í Stokk­hólmi í gær var að kona giftist manni… unnust þau bæði vel og lengi, áttu börn og burur, grófu rætur og murur; köttur úti í mýri, setti upp á sér stýri, úti er ævintýri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár