Michael Johnson: Gatlin er ekki vandamálið, hann er hluti af því

Michael Johnson, fyrr­verandi Ólympíu- og heims­meistari í 200 og 400 metra hlaupi, segir að það sé ekki sann­gjarnt að persónu­gera vanda­málin sem frjálsar íþróttir glíma nú við, sem snúa að lyfja­misferli, í bandaríska hlaup­aranum Justi Gatlin. „Vanda­málið er ekki Gatlin, hann er bara hluti af því. Helmingurinn af hinum hlaupurunum sem hlupum í 100 metra hlaupinu hafa allir fallið á lyfja­prófinu. Það er vanda­málið,“ sagði Michael Johnsson í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC.

Mikil umræða um lyfja­misferli hefur átt sér stað að undan­förnu, ekki síst í aðdrag­anda úrslita­hlaupsins í 100 metra hlaupi á heims­meistara­mótinu í Peking, þar sem Usain Bolt frá Jamíku sigraði með naumindum á 9,79 sekúndum.

Sigur­björn Árni Arngrímsson, hlaupari og prófessor í íþrótta­fræðum við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, sagði meðal annars þegar hann lýsti hlaupinu beint á RÚV að Bolt hefði „bjargað íþróttinni“ með sigrinum. Bolta er fyrir heims­methafi í 100 og 200 metra hlaupi og marg­faldur Ólympíu- og heims­meistari.

Gatlin féll fyrst á lyfja­prófi 2001 og fékk þá tveggja ára keppnis­bann, sem var svo stytt í eitt ár. Árið 2005 féll Gatlin aftur á lyfja­prófi þegar sterar mældust í alltof miklu mæli í honum. Hann hafði þá unnið 100 og 200 hlaup á HM í Helsinki í Finnlandi. Hann fékk þá fjögurra ára keppnis­bann. Eftir að því lauk hóf hann keppni á nýjan leik, og er nú kominn í fremstu röð aftur.

Johnson segir mikilvægt að almenningur fái fram rétt skilaboð í umræðum um lyfja­misferli. Svindlið muni halda áfram þrátt fyrir að Gatlin hætti, nema að hugsunar­hætti íþrótta­manna verði breytt og þeir hætti að nota ólögleg lyf til þess að ná lengra.

https://www.youtube.com/watch?v=v2W_T77vwfQ

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár