Eiginkona Tim Hunt segir ummæli hans „ótrúlega heimskuleg“

Lífefna­fræðingurinn og Nóbels­verðlauna­hafinn Tim Hunt á ekki sjö dagana sæla eftir að hafa farið niðrandi orðum um konur á ráðstefnu í Suður-Kóreu á dögunum. Þar sagði Hunt um konur í vísinda­geiranum: „Lofið mér að segja ykkur frá vanda mínum varðandi stelpur. Það er þrennt sem gerist þegar þær eru á rannsóknar­stofunni. Maður verður ýmist ástfanginn af þeim, eða þær ástfangnar af manni, og þegar maður gagnrýnir þær fara þær að skæla.“

Ummælin vöktu skiljanlega hörð viðbrögð, en Hunt kveðst hlynntur kynja­skiptum rannsóknar­stofum. Viðbrögðin urðu meira að segja til þess að Hunt sagði upp stöðu sinni við University College í Lundúnum. Þá hafa vísinda­konur víða um heim sameinast á Twitter þar sem þær keppast við að hafa ummæli breska vísinda­mannsins að háði og spotti undir myllu­merkinu #distractinglysexy.

Kveðst búinn að vera


Í ítar­legu við­tali við breska frétta­mið­il­inn Guardian, ásamt eig­in­konu sinni, þver­tekur Hunt fyrir að hann hafi ætlað sér að móðga konur í vís­inda­heim­inum, hann hafi ein­ungis gerst sekur um lélega kímni­gáfu og kald­hæðni, en við­ur­kennir að hann hefði ekki átt að láta þau falla.

Hunt segir að ferill sinn í vísindum sé á enda runninn eftir ummælin umdeildu. „Ég hafði hugsað mér að gera miklu meira til að vinna vísindum frekari framgang hérlendis og annars staðar í Evrópu, en nú verður ekkert af því. Ég er orðinn mengaður og akademíska samfélagið hefur ekki einu sinni haft fyrir því að fá mína hlið mála,“ segir Hunt í samtali við Guardian.

Eiginkona Hunt, háskóla­prófessorinn Mary Collins, sem skilgreinir sig sem femínista, viðurkennir að ummæli eigin­mannsins hafi verið „ótrúlega heimskuleg.“ Hún tók einnig til varna fyrir eiginmann sinn. „Ég skil alveg að orð hans hafi móðgað einhverja sem þekkja hann ekki. Ég hefði aldrei þolað að eyða ævinni með honum ef hann væri karlremba.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár