Mesta framkvæmd á vegum Alþingis í 140 ár

Forseti Alþingis hélt ávarp við fyrstu skóflustungu að nýbygg­ingu á Alþing­is­reitnum í dag en á næstu fjórum árum mun rísa um 6.000 fer­metra bygg­ing á reitnum.

Fyrsta skóflustungan að nýbygg­ingu Alþingis var tekin í dag, 4. febr­úar, og markar hún form­legt upp­haf fram­kvæmda við nýbygg­ing­una á Alþing­is­reit. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis í dag.

Þá segir að bygg­ingin sé þjón­ustu­kjarni sem í fyll­ingu tím­ans muni sam­eina á einum stað alla starf­semi nefnda­sviðs, skrif­stofur þing­manna og funda- og vinnu­að­stöðu þing­flokka.

Hlé var gert á þing­fundi á meðan Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, og Ragna Árna­dóttir skrif­stofu­stjóri tóku fyrstu skóflustung­una. Að henni lok­inni var þing­mönnum, starfs­fólki og öðrum gestum boðið upp á kaffi og kökur í Skála.

Á meðal gesta voru fyrr­ver­andi for­setar Alþingis, arki­tektar og aðrir hönn­uðir og full­trúar Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins. Verk­taka­fyr­ir­tækið Urð og grjót ehf. sér um jarð­vegs­vinnu en það átti lægsta til­boð í þann verk­þátt fram­kvæmd­anna þegar hann var boð­inn út síð­ast­liðið haust. S. Helgason átti lægsta til­boð í vinnslu á stein­klæðn­ing­unni sem verður utan á hús­inu en sú vinna var boðin út í ágúst á síð­asta ári. Útboð í vinnu við aðal­bygg­ingu og tengi­ganga verða aug­lýst í vor og er gert ráð fyrir að upp­steypa hefj­ist í haust. Verklok eru áætluð í febr­úar 2023, sam­kvæmt skrif­stofu Alþingis.

Stein­grímur sagði við til­efnið að hér færi nú af stað mesta fram­kvæmd á vegum Alþingis í 140 ár, það er frá því að Alþing­is­húsið sjálft reis á árunum 1880 til 1881. „Sú fram­kvæmd var reyndar risa­vaxin á þáver­andi mæli­kvarða lands­ins. Fjárlög voru þá sam­þykkt til tveggja ára í senn og í frum­varpi því sem varð að lögum 26. ágúst 1879 fyrir árin 1880 og 1881 hljóð­uðu tekjur Íslands – eins og það var orðað – og gjöld upp á 777 þús­und, 825 krónur og 20 aura,“ sagði hann.

Á hvoru ári um sig hefðu umsvifin sem sagt verið tæpar 390 þús­und krónur, en þing­húsið kost­aði 120 þús­und, eða tæpan þriðj­ung árlegra umsvifa rík­is­ins eins og þau voru á þeim tíma. „Rétt er auð­vitað að geta þess að þá var verið að byggja fyrir hvort tveggja í senn Alþingi og söfn lands­ins, en stærð­argráðan var engu að síður þessi,“ sagði hann.

Kostnaðaráætlun upp á 4,4 milljarða

Þá benti hann á að þarna risi á næstu fjórum árum um 6.000 fer­metra bygg­ing sem mundi sam­eina á einum stað, undir einu þaki, skrif­stofur fyrir alla þing­menn, aðstöðu fyrir þing­flokka, funda­her­bergi nefnda og vinnu­að­stöðu starfs­manna þeirra, auk funda og ráð­stefnu­að­stöðu og margt fleira. Bygg­ingin verður tengd nær öllum öðrum bygg­ingum Alþingis þannig að innan gengt verður til Skála og þing­húss­ins sjálfs auk húsa­lengj­unnar við Kirkju­stræti.

Samkvæmt Stein­grími er kostn­að­ar­á­ætlun fyrir bygg­ing­una sjálfa upp á 4,4 millj­arða króna að við­bættum verð­bótum á bygg­ing­ar­tíma. Af bygg­ing­unni mundi leiða mikið hag­ræði og sparn­aður til lengri tíma litið, því leiga á fjöl­mörgum stöðum í Kvosinni á mis­hent­ugu hús­næði væri óhent­ugt og dýrt úrræði. „Mest um vert er þó að hér verða skap­aðar nútíma­legar og fyrsta flokks vinnu­að­stæður fyrir þing­menn og ekki síður starfs­fólk Alþingis. Hér verða góðar aðstæður til að taka á móti gestum sem til Alþingis og þing­nefnda koma og Alþingi verður mun betur í stakk búið til að halda ýmis konar fundi og minni ráð­stefnur.“

Í máli hans kom enn fremur fram að tveir fyrstu verk­þætt­irnir væri þegar umsamdir, það er steinkápan utan á bygg­ing­una en lit­brigði í íslensku bergi mundi setja á hana sterkan svip og svo jarð­vegs­vinna í grunni bygg­ing­ar­innar sem hefst á næstu dögum. Útboð fyrir bygg­ing­una sjálfa yrði svo aug­lýst í vor og upp­steypa hefj­ast í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár