Margrét Vilborg hlaut aðalverðlaun kvenfrumkvöðla

Sprota­fyrirtækið PayAnalytics er í örum vexti þessi misserin.

Margrét Vilborg Bjarna­dóttir, stofnandi íslenska sprota­fyrir­tækisins PayAnalytics, hlaut nýverið aðal­verðlaun alþjóð­legs þings Heims­samtaka frumkvöðla- og uppfinninga­kvenna GWIIN, sem fram fór í London 27. – 28. júní.

Margrét kynnti á þinginu nýsköpunina að baki hugbúnaðar­lausninni sem gerir fyrir­tækjum kleift að framkvæma launa­greiningar, skoða áhrif launa­ákvarðana og ráðast á launabil kynjanna með aðgerðar­áætlun og kostnaðar­greiningu.

Einnig hjálpar PayAnalytics til við að halda launa­bilinu lokuðu með launa­tillögum fyrir nýráðningar og þá sem færast til í starfi. Nýsköpunin að baki lausninni felst í stærðfræði­algrímum til að loka launa­bilum og í því að setja fram flókna tölfræði og stærðfræði­líkön á auðskiljanlegan og notenda­vænan hátt.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íslenskar konur hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni, en Sandra Mjöll Jóns­dóttir hlaut sömu verðlaun árið 2017. Þær sem deildu með sér 2. sætinu voru Dr. Rafiza ABD Razak frá Malasíu sem hefur unnið að rann­sóknum á nýjungum í byggingar­efnum, þá sérstak­lega að búa til byggingar­efni úr ösku­kenndum leir og Jenan Esam Saleh Alshehab frá Kúveit sem hefur unnið að þráðlausu rafmagni,“ segir í tilkynningu.

Í 3. sæti var svo Ervina Efzan ) frá Malasíu sem er að búa til gler úr banana trefjum (stem) og losna þar með við eiturefni eins og t.d. blý úr glerinu.

Fyrr á árinu vann PayAnalytics fyrstu verðlaun á Wharton People Analytics Conference, sem er keppni fyrir nýsköpunar­fyrirtæki í Banda­ríkjunum sem haldin er af hinum virta viðskipta­háskóla Wharton í Pennsylvaníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár