Ábyrgðarleysi að kjósa að hausti eins og fjármálaráðherrann hefur hug á

Þing­maður Pírata telur að hrein­leg­ast væri fyrir þing­flokk­ana að fá end­ur­nýjað umboð og halda kosn­ingar að vori 2021. Það gæfi öllum heið­ar­legt tæki­færi til þess að koma aðgerðum af stað strax árið 2022 í stað 2023.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, vekur máls á orðum Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag en ráð­herr­ann sagð­ist í við­tali við Kjarnann enn vera þeirrar skoð­unar að rík­is­stjórnin geri rétt í því að starfa út kjör­tíma­bilið allt. Það þýðir að kosið verði að hausti en ekki að vori eins og venjan er.

„Vissu­lega geta aðstæður breyst en þetta yrðu aðstæður þar sem ný rík­is­stjórn, lík­lega með nýjar áherslur, hefði ekki svig­rúm til þess að und­ir­búa nýja stefnu. Það myndi þýða að stefna þess­arar stjórnar væri að end­ast til 2023,“ skrifar Björn Leví.

Að hans mati er það ábyrgð­ar­leysi í kjöl­far svona ástands að setja fjár­laga­gerð í árs­loka­af­greiðslu eins og hafi verið gert eftir síð­ast­liðnar tvennar kosn­ingar.

Sýni sjálfhverfu þeirra og valdhyggju

Björn Leví segir að áróð­ur­inn verði sá að auð­vitað verði nú að kjósa sömu stjórn aftur, „til þess að þau fái bara að klára fjár­laga­frum­varp sem þau leggja fram rétt fyrir kosn­ingar. „Stöð­ug­leik­inn“ sko.“ Hann bendir á að vert sé að hafa í huga að Íslend­ingar hafi verið í efna­hags­sam­drætti fyrir COVID-19. Þeir séu að vinna sam­kvæmt end­ur­skoð­aðri fjár­mála­stefnu út af sam­drætti vegna WOW og afla­brests. Ekkert virt­ist hins vegar vera „að ganga að vinna neitt til baka úr því þar sem atvinnu­leysi hafi farið stöðugt vax­andi“ fram að COVID-19.

Hann telur að hrein­leg­ast væri að fá end­ur­nýjað umboð vorið 2021. Það gæfi öllum heið­ar­legt tæki­færi til þess að koma aðgerðum af stað strax árið 2022 í stað 2023. „Ef stjórn­ar­flokk­arnir ætla að halda sig við haustið, hins vegar, þá sýnir það ein­fald­lega sjálf­hverfu þeirra og vald­hyggju. Ekki virð­ingu fyrir lýð­ræði eða skiln­ingi á því að það er hægt að gera hlut­ina öðru­vísi. Tregða þeirra til þess að leggja áherslu á nýsköpun og að tryggja sveigj­an­leika grunn­stoð­anna okkar er bein­línis skað­leg.“

Þá finn­ist honum auð­velda ákvörð­unin vera að treysta á lýð­ræðið. „Erfiða ákvörð­unin verður að hafa þennan flokk við völd því lausnin er sára­ein­föld. Hún tekur ein­fald­lega tíma.

Við tekur upp­bygg­ing­ar­ferli, ekki skyndi­lausnir. Þær keyra okkur alltaf í kaf. Við þurfum sjálf­bært sam­fé­lag sem er ekki svona við­kvæmt fyrir sveiflum í ein­staka atvinnu­greinum,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár