Stöðva þurfi fölsun kynferðislegra mynda af börnum á tólinu Grok

Yfirvöld í Bretlandi og framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins kalla eftir því að komið verði í veg fyrir að gervi­greindar­tólið Grok í eigu Elon Musks sé notað til að skapa falsaðar kynferð­is­legar myndir af börnum.

Elon Musk
Elon Musk Er eig­andi gervi­greind­ar­tóls­ins Grok og sam­fé­lags­mið­ils­ins X. Mynd: AFP

Breska ríkis­stjórnin hefur kallað eftir því að X, samfélags­miðill Elon Musk, grípi til tafar­lausra aðgerða vegna falsaðra kynferðislegra mynda sem gervi­greindar­tólið Grok býr til af börnum.

„Það sem við höfum séð á netinu undan­farna daga er algjör­lega hræðilegt og óásættanlegt í siðuðu samfélagi,“ sagði Liz Kendall tækni­ráðherra Bretlands í yfir­lýsingu. „X þarf að takast á við þetta tafar­laust.“

Gervi­greindar­tólið Grok stendur frammi fyrir sívaxandi alþjóðlegri gagnrýni þar sem notendum hefur verið leyft að búa til kynferðislegar djúp­falsaðar myndir af konum og börnum í gegnum svokallaða „kryddaða stillingu“ eða spicy mode.

„Grok býður nú upp á „kryddaða stillingu“ sem sýnir kynferðislegt efni með myndum sem líkjast börnum,“ sagði Thomas Regnier talsmaður hjá Evrópu­sambandsins. „Þetta er ekki kryddað. Þetta er ólöglegt. Þetta er hræðilegt. Þetta er viðbjóðslegt.“

Framkvæmda­stjórn ESB hefur tilkynnt að hún fari nú „mjög alvarlega“ yfir kvartanir sem hafa borist vegna tólsins. Framkvæmda­stjórnin hefur …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár