Telur tillögu um aðgengi að þungunarrofi atlögu að íslensku heilbrigðiskerfi

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins veltir fyrir sér kostn­aði ef þings­á­lykt­un­ar­til­laga um aðgengi ein­stak­linga sem ferð­ast til Íslands að þung­un­ar­rofi verði sam­þykkt. Flutn­ings­maður til­lög­unnar segir þing­mann­inn afbaka stað­reyndir í þessu máli.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Ásmundur Friðriksson.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Ásmundur Frið­riks­son. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í morgun hvort það væri hlut­verk heil­brigð­is­kerf­is­ins á Íslandi að bregð­ast við póli­tísku heil­brigð­is­vanda­máli tug­millj­óna þjóða þegar Íslend­ingar glímdu við biðlista í heil­brigð­is­kerf­inu „sem okkur dreymir öll um að eyða“.

Málið sem þing­mað­ur­inn vís­aði í er ný þings­á­lykt­un­ar­til­laga um aðgengi ein­stak­linga sem ferð­ast til Íslands að þung­un­ar­rofi sem 19 þing­menn úr Sam­fylk­ing­unni, Viðreisn, Pírötum,Vinstri grænum og þing­menn utan flokka á Alþingi hafa lagt fram. Ásmundur spurði hvort svona til­laga væri „ekki atlaga að íslensku heil­brigð­is­kerfi“.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður utan flokka, er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar – en hún sagði þing­mann­inn fara með rang­færslur í ræðu sinni og gagn­rýni hann harð­lega fyrir að halda hana undir þessum lið þar sem hún og aðrir flutn­ings­menn gætu ekki svarað orðum hans.

Réttur þeirra verndaður sem ekki geta notið sjálfsforræðis yfir eigin líkama

Í til­lög­unni er lagt til að heil­brigð­is­ráð­herra tryggi að ein­stak­lingar sem ferð­ast hingað til lands í því skyni að gang­ast undir þung­un­ar­rof fái við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta verði bundið því skil­yrði að við­kom­andi megi ekki gang­ast undir þung­un­ar­rof vegna lög­bund­inna hind­r­ana í heima­land­inu og upp­fylli skil­yrði í lögum um þung­un­ar­rof. Þá þurfi við­kom­andi að geta fram­vísað evr­ópska sjúkra­trygg­inga­kort­inu.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni er bent á að heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um þung­un­ar­rof sé nýlokið en yfir­lýst mark­mið þeirra er „að tryggja að sjálfs­for­ræði kvenna sem óska eftir þung­un­ar­rofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu“.

Ísland sé þar að auki aðili að fjöl­mörgum alþjóða­samn­ingum, meðal ann­ars samn­ingi Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir og bar­áttu gegn ofbeldi gegn konum og heim­il­is­of­beldi (Ist­an­búl­samn­ingnum), og kvenna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem meðal ann­ars er kveðið á um rétt kvenna til heil­brigð­is­þjón­ustu.

Með hlið­sjón af því sé mark­mið þess­arar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að tryggja að ein­stak­lingum, sem hafa erlent rík­is­fang og hafa ekki dvalið hér á landi til lengri tíma en geta fram­vísað evr­ópska sjúkra­trygg­inga­kort­inu, séu veitt þau rétt­indi sem lög tryggja hér á landi og gera þannig hand­höfum evr­ópska sjúkra­trygg­inga­korts­ins kleift að und­ir­gang­ast þung­un­ar­rof sem ann­ars væri þeim ekki aðgengi­legt. Með því væri vernd­aður réttur þeirra sem ekki geta notið sjálfs­for­ræðis yfir eigin lík­ama, í ljósi laga eða nið­ur­stöðu dóma í heima­landi þeirra.

Afgerandi staða tekin með kvenréttindum í Evrópu

„Nauð­syn­legt er að heil­brigð­is­ráð­herra tryggi aðgengi hand­hafa evr­ópska sjúkra­trygg­inga­korts­ins að þung­un­ar­rofi hér­lendis, að fyrr­greindum skil­yrðum upp­fylltum, og að þannig sé tekin afger­andi staða með kven­rétt­indum í Evrópu. Aðgengi að þung­un­ar­rofi er ekki jafnt innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, til að mynda má ekki fram­kvæma þung­un­ar­rof á Möltu nema líf kon­unnar sé í hættu. Hinn 22. októ­ber 2020 ákvarð­aði stjórn­laga­dóm­stóll Póllands að herða enn frekar lög um þung­un­ar­rof og taka fyrir að þung­un­ar­rof væri fram­kvæmt væri fóstrið ekki líf­væn­legt, en það hefur hingað til hefur verið ástæða um 98% lög­legra þung­un­ar­rofa í Póllandi.

Þar sem ein­ungis tvö lönd innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, Malta og Pólland, upp­fylla skil­yrðið sem lagt er til í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess­ari, er ekki talið að þetta hafi íþyngj­andi afleið­ingar fyrir rík­is­sjóð. Þó að það væri ósk­andi að geta tekið á móti fleiri konum eða ein­stak­lingum sem ekki hafa þessi rétt­indi í heima­landi sínu eru flutn­ings­menn frum­varps­ins með­vit­aðir um það bakslag sem er í sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna yfir lík­ama sínum í Evrópu en í krafti evr­ópskrar sam­vinnu á vett­vangi heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi er hæg­ara um vik að tryggja konum og ein­stak­lingum með evr­ópska sjúkra­trygg­inga­kortið þá sjálf­sögðu heil­brigð­is­þjón­ustu sem felst í þung­un­ar­rofi,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Fram kemur í til­lög­unni að aðgengi að við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu á með­göngu séu grund­vall­ar­mann­rétt­indi. Með því að tryggja aðgengi erlendra borg­ara, sem ann­ars hafa ekki lög­legan rétt til þess­arar þjón­ustu, tæki Ísland afger­andi stöðu með rétt­indum þeirra, ekki bara hér­lendis heldur einnig á alþjóð­legum vett­vangi.

Velti fyrir sér stöðu spítalans til að taka á móti þessum konum

Ásmundur gerði málið, eins og áður segir, að umræðu­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í morgun. „Starfs­um­hverfi heil­brigð­is­þjón­ust­unnar er reglu­lega til umræðu í þing­inu. Minni hlut­inn í þing­inu þreyt­ist ekki á að benda á það sem betur má fara. Vissu­lega er margt sem betur má fara í heil­brigð­is­kerf­inu sem nú upp­lifir sína erf­ið­ustu tíma. En það eru samt 18 þing­menn sem telja að ekki sé nóg að gert í heil­brigð­is­kerf­inu, þing­menn sem margoft hafa rætt um vanda­mál og mönnun í heil­brigð­is­kerf­inu, lélega aðstöðu, of mikið álag, of lítið fjár­magn, of lág laun og að þar sé allt í volli. Samt erum við að tala um eitt af bestu heil­brigð­is­kerfum í heimi,“ sagði Ásmundur.

Flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar munu flytja hana í dag en málið er 17. mál á dag­skrá þings­ins. Ásmundur telur að til­lagan muni fela í sér aukið álag á heil­brigð­is­kerfið og þó fyrst og fremst á Land­spít­al­anum.

„Það er sem sagt verið að flytja þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgengi fyrir konur til að ferð­ast til Íslands í fóst­ur­eyð­ingu. Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan á fyrst og fremst við íbúa í Póllandi og Möltu, en þeir eru sam­tals 38,2 millj­ónir. Fram kom fram í þætt­inum Heims­byggð í Rík­is­út­varp­inu, þar sem þessi þings­á­lykt­un­ar­til­laga var til umfjöll­unar, að á bil­inu 100.000 til 200.000 ólög­legar fóst­ur­eyð­ingar ættu sér stað á hverju ári í Póllandi,“ sagði hann.

„Ég velti fyrir mér, þótt ekki væri nema brot af þessum fóst­ur­eyð­ingum ætti að flytj­ast á Land­spít­al­ann, hvernig staðan verði á þungsettum spít­al­anum og kvenna­deild­inni. Ég velti líka fyrir mér kostn­að­inum, virðu­legur for­seti: Hver á að greiða fyrir flug og gist­ingu? Hver greiðir fyrir við­tal, þjón­ustu og aðgerð­irnar sem á eftir fylgir? Hver greiðir fyrir eft­ir­fylgn­ina, sál­fræði­að­stoð­ina og annað sem hér er í boði?“ spurði Ásmundur.

Telur Ásmund þurfa leiðsögn

Rósa Björk tók til máls undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta og ræddi ræðu Ásmundar. „Ég vil ræða hér fund­ar­stjórn for­seta vegna ræðu hátt­virts þing­manns Ásmundar Frið­riks­sonar hér áðan sem sner­ist um þing­mál mitt, þings­á­lykt­un­ar­til­lögu mína um aðgengi ein­stak­linga sem ferð­ast til Íslands að þung­un­ar­rofi.“

Hún gerði athuga­semd við að Ásmundi hefði ekki verið leið­beint um það að í þing­sköpum væri liður sem heitir að eiga orða­stað við þing­mann. „Ef hann vill ræða við mig um mitt þing­mál og gera athuga­semdir við mitt þing­mál sem átján þing­menn hér í þessum stað styðja þetta heils­hugar. Að þessi þing­maður hátt­virtur skuli nota lið­inn störf þings­ins til þess að bæði að fara með rang­færslur í þessu máli í stað þess að nota lið­inn að eiga orða­stað við þing­mann. Ég tel þetta vera ámæl­is­vert, herra for­seti, og ég tel að það þurfi að leið­beina hátt­virtum þing­manni með þing­sköpin sem að greini­legt er að þing­maður þekkir ekki nægi­lega til þess að geta fært rök fyrir máli sínu sem er afvega­leitt og snýst um að afbaka hér stað­reyndir.“

Forseti Alþingis tók undir með Rósu Björk

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, svar­aði Rósu Björk og sagði að hann yrði að taka undir það að við þessar aðstæður hefði verið til­hlýði­legt að Ásmundur hefði haft sam­band við þann þing­mann sem hann hygð­ist eiga orða­stað við, ef um slíkt væri að ræða.

„Á þetta hefur áður reynt og for­seti hefur áður bent þing­mönnum á að það er við hæfi, ef þeir ætla að víkja sér­stak­lega og beint að mál­efnum ann­ars þing­manns, að hann sé þá var­aður við og geti verið á mæl­enda­skrá á eftir. Þessar leik­reglur eiga allir hátt­virtir þing­menn að þekkja og það er erfitt um vik fyrir for­seta að leið­beina mönnum eftir á. Það er nú bara vand­inn,“ sagði Stein­grímur.

Fleiri þing­menn tóku undir orð Rósu Bjarkar undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta og gagn­rýndu Ásmund fyrir orð hans og ásetn­ing í fyrri ræðu.

„Ráðum við við slíka þjónustu?“

Ásmund­ur spurði jafn­framt út í málið á fundi vel­ferðar­nefnd­ar Alþing­is í gær þar sem rætt var um neyð­ar­stig Land­spít­al­ans, að því er fram kemur í frétt mbl.is. Benti hann á frétt á RÚV um 150 þús­und þung­un­ar­rof í Póllandi á ári. „Ráðum við við slíka þjón­ustu?“ spurði hann.

Páll Matth­ías­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, var til svara á fund­inum og sagði Land­spít­al­ann ekki geta tekið við 150 þús­und kon­um sem þyrftu að fara á kvenna­deild­ina. „Við erum ekki með þannig bol­magn en ég vil nú kannski ekki tjá mig meira um þetta mál um­fram það. Ég hef ekki heyrt nein áform um að taka við slík­um hópi,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár