„Ég var ofbeldisfullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

„Ég var ofbeldisfullur“
Glettnin í sam­skiptum Emblu Krist­jáns­dóttur og Niels Thom­as­sen leynir sér ekki. Og ástin leynir sér ekki heldur, enda hafa þau upp­lifað stóra sögu saman.

Það er ekki ein­falt að segja sögu manns sem hefur bæði orðið fyrir ofbeldi og beitt því sjálfur. Slíkar frá­sagnir falla sjaldan að ein­földum skýr­ingum, heldur krefj­ast þess að sam­tímis sé litið til sam­hengis, arf­leifðar og ábyrgðar. 

Niels Thom­as­sen ólst upp á Norður-Græn­landi á sjö­unda og átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, í litlu sjáv­ar­þorpi þar sem allir þekktu alla – og vissu flestir hvað gekk á innan veggja heim­il­anna. Hann var eitt sjö systk­ina, fædd á árunum 1963 til 1971, inn í aðstæður sem faðir hans stýrði af hörku. 

„Allir vissu,“ segir Niels, „en eng­inn gerði neitt.“

Sár æsk­unnar ristu djúpt. Sjálfur reyndi Niels að sýna styrk sinn með því að beita sömu hörku og ofbeldi, þar til hann neydd­ist til þess að horfast í augu við sjálfan sig. Þá kom­inn í sam­búð með íslenskri konu sem setti honum stól­inn fyrir dyrnar. 

Þegar efna­hags­hrunið skall …

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár