Kynntu sex aðgerðir til að flýta innritun barna á leikskóla

Borgarráð Reykja­víkur samþykkti í dag aðgerða­áætlun í sex liðum, sem ætluð er til þess að flýta innritun barna á leikskóla. Foreldrar ungra barna hafa sett mikinn þrýsting á borgar­fulltrúa sökum þess að útgefnar áætlanir hafa ekki staðist.

Alls eru nú 665 börn sem verða 12 mánaða eða eldri þann 1. september á biðlista eftir plássi á leikskólum í Reykjavík.
Alls eru nú 665 börn sem verða 12 mán­aða eða eldri þann 1. sept­em­ber á biðlista eftir plássi á leik­skólum í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór

Borgarráð Reykja­víkur samþykkti í dag sex tillögur, sem ætlað er að flýta innritun barna á leikskóla í borginni. Skúli Helgason borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar og formaður stýri­hópsins Brúum bilið kynnti tillögurnar á fundi sem fram fór í Ráðhúsi Reykja­víkur.

Í máli hans kom fram að alls stefndi í að ný leikskóla­pláss í borginni yrðu 553 talsins á þessu ári og 376 á næsta ári. Samkvæmt því sem Skúli sagði á fundinum eru um 665 börn, sem verða orðin 12 mánaða eða eldri þann 1. september, með umsóknir um leikskóla­pláss í borginni – eða á hinum svokallaða biðlista.

Skoða Korpuskóla ef áhugi er hjá foreldrum

Tillögurnar sex felast í fyrsta lagi í því að flýta opnun leikskóla, svokallaðrar Ævintýra­borgar í Naut­hólsvík, strax í byrjun september. Skúli sagði að það lægi fyrir að það yrði hægt, eftir samtöl við alla hlut­aðeigandi. Aðlögun barna verður flýtt og á að klárast á einum mánuði og kraftur verður settur í að klára húsnæði skólans, en framkvæmdir við útisvæði munu ekki klárast strax. Útivera barnanna verður því í nærumhverfi skólans, í Öskju­hlíðinni, til að byrja með.

Önnur aðgerðin er sú að laust húsnæði í eigu borgarinnar verði nýtt til að taka við börnum strax í haust. Meðal annars er hafin könnun á því hvort taka megi við börnum í Korpu­skóla í Grafar­vogi. Þar eigi að geta verið pláss fyrir 120-150 börn, að sögn Skúla. Einnig er til skoðunar að opna tvær deildir til viðbótar á leik­skólanum Bakka, sem er á svipuðum slóðum í Grafar­voginum.

Einnig hefur verið lagt til að skoða hvort hægt sé að nýta húsnæði frístunda­heimila og annað húsnæði á vegum borgarinnar og samstarfs­aðila tíma­bundið undir leik­skólastarf. Skúli sagði að það yrði þá e.t.v. hægt að bjóða börnum að koma inn á frístunda­heimili fyrri hluta dags. Þessi önnur aðgerð er háð áhuga foreldra á því að þiggja pláss sem standa til boða, og er einnig með fyrirvara um mönnun.

Þriðja aðgerðin snýr að því að setja upp nýjan leikskóla með 100 plássum í Fossvogi, í Ævintýra­borgar­húsnæði, á lóð sem er við hlið Ræktunar­stöðvar Reykja­víkur. Skúli sagði að raunhæfur tímarammi í þessum efnum væru 9 mánuðir, og leikskóli gæti því verið risinn um mitt næsta ár.

Fjórða aðgerðin sem samþykkt var er möguleg stækkun leik­skólans Steina­hlíðar við Suður­landsbraut. Skúli sagði að á leik­skólanum væru 55 börn í dag, en að vilji hefði verið hjá Barna­vina­félaginu Sumargjöf, sem á lóðina og húsnæði skólans, til að stækka leik­skólann. Ekki hefur verið ráðist í formlegar viðræður um stækkunina, en til stendur að gera það.

Í fimmta lagi var samþykkt að hækka niður­greiðslu vegna þjónustu dagforeldra til þess að fjölga dagforeldrum, styrkja starfs­grundvöll þeirra og lækka útgjöld foreldra sem nýta sér þjónustu dagforeldra. Stofn­styrkir verði hækkaðir og fleiri leiðir til úrbóta kannaðar, s.s. húsnæðis­stuðningur og fræðslu­styrkir.

Sjötta og seinasta aðgerðin er svo sú að taka verklag leikskóla­innritunar til skoðunar. Endur­skoða á verklagið með tilliti til bættrar upplýsinga­gjafar til foreldra, einföldunar umsóknar­ferils og meira gagnsæis. Skúli sagði að draumurinn væri sá að foreldrar gætu farið inn á vef borgarinnar og séð hvar laus pláss stæðu til boða. Hann sagði einnig lykil­atriði að sjálfstætt starfandi leik­skólar verði hluti af sama innritunar­kerfi og þeir borgar­reknu, til að eyða tvítalningu í kerfinu.

Áætlanir stóðust ekki

Meirihluti borgar­stjórnar hefur verið harðlega gagn­rýndur undan­farnar vikur, eftir að úthlutun plássa á leikskóla í haust lá fyrir. Ljóst er að þvert á það sem sumir borgar­fulltrúar boðuðu fyrir kosningar, og raunar embættis­menn borgarinnar líka, verður ekki hægt að taka á móti 12 mánaða gömlum börnum inn á leikskóla í haust.

Er Kjarninn spurðist fyrir um þessi mál, í aðdrag­anda sveitar­stjórnar­kosninga, fengust þau svör frá upplýsinga­fulltrúa borgarinnar að Reykja­víkurborg væri að vinna eftir áætlunum sem gerðu ráð fyrir því að hefja inntöku 12 mánaða barna strax í haust.

Á daginn hefur komið að ekki mun raun­gerast að 12 mánaða börn fái pláss á leikskóla í haust, fjölda plássa skeikar þar um nokkur hundruð. Þetta hefur sett áætlanir margra foreldra í uppnám, enda höfðu stjórn­málamenn talað með þeim hætti að hægt yrði að koma börnum inn á leikskóla ef þau yrðu orðin 12 mánaða gömul í upphafi nýs skóla­vetrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár