Kínversk stjórnvöld refsa 197 einstaklingum fyrir „orðróm“ á netinu

Kínversk stjórn­völd hafa ekki aðeins brugðist við hruni á hlutabréfa­markaði heima fyrir og versnandi hagtölum, með örvunar­aðgerðum, heldur beinast nú spjótin að einstaklingum sem eru sagðir hafa verið að breiða út „orðróm“ um slæma stöðu kínverska hagkerfisins. Samtals liggja 197 einstaklingar undir grun yfirvalda, sem heita þungum refsingum að því er fram kemur á vef New York Times. Engar frekari upplýsingar fást um málið, að því er fram kemur á vef breska ríkis­útvarpsins BBC, en ríkis­fjöl­miðillinn Xinhua greindi fyrst frá málinu.

Blaðamenn og starfs­menn kaup­hallarinnar í Shanghai eru á meðal þeirra sem kínversk stjórn­völd telja að hafi kerfis­bundið skapað neikvæðan orðróm til þess að skaða ímynd kínverska hagkerfisins.

Þá telja stjórn­völd einnig að þessi hópur manna hafa borið út ósannan orðróm um sprengingarnar í Tianjin, en þá dóu 150 manns í öflugum sprengingum á iðnaðar­svæði í þessari næst stærstu borg Kína. Mörg hundruð til viðbótar slösuðust, en rannsókn á orsök sprenginganna stendur enn yfir.

Samkvæmt umfjöllun BBC geta einstaklingarnir átt von á því að fá allt að þriggja ára fangelsi, samkvæmt lögum frá 2013, en eins og áður segir hafa ekki frekari upplýsingar verið veittar um meintar sakir eða rann­sóknina.


China punishes 197 over stock 'rumours' http://t.co/uRRoPNgIez


— BBC News (World) (@BBCWorld) August 30, 2015

Mikill glundroði hefur einkennt verðbréfa­markaði í Kína í sumar, og hefur virði hluta­bréfa hríð­fallið á undan­förnum mánuðum eftir miklar hækkanir mánuðina á undan. Þá hafa aðgerðir stjórn­valda í Kína, til þess að koma á stöðug­leika á markaðnum, ekki gengið vel. Meðal þess sem gripið var til, var að skylda hluthafa og fjárfesta til þess að kaupa hlutabréf og banna sölu á bréfum tíma­bundið. Þetta virkaði ekki vel, og hafa kínversk stjórn­völd nú hætt við áætlanir sem byggðu á þessum aðferðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár