GRID nær í 425 milljóna króna fjármögnun

Íslenskt fyrirtæki, sem stofnað var í fyrra­haust, hefur þegar náð í yfir hálfan milljarð króna í fjár­mögnun. Það ætlar sér að frelsa töflu­reikninn.

Starfsmenn GRID.
Starfs­menn GRID. Mynd: grid.is

Íslenska hugbúnaðar­fyrirtækið GRID hefur tryggt sér 3,5 miljóna dala, um 425 milljón króna, fjár­mögnun. Þetta er í annað sinn frá því að GRID, sem var stofnað í fyrra­haust, lýkur fjár­mögnunar­lotu en í október tryggði fyrir­tækið sér eina milljón dali, um 122 milljónir króna, fjár­mögnun.

Samanlagt nemur því fjár­festingin í GRID, sem er rétt hálfs árs gamalt, vel yfir hálfum milljarði króna.

Stofnandi og framkvæmda­stjóri GRID er Hjálmar Gíslason, sem stofnaði áður, og seldi síðar, Datamarket sem síðar rann inn í Qlik. Hjálmar er einnig hluthafi í Kjarnanum og stjórnar­formaður rekstrar­félags miðilsins.

Hugmyndin að GRID snýst um söfnun og fram­setningu gagna í gegnum tól sem legst ofan á töflu­reikni (e. spreadsheet) sem býr til viðmót sem notendur geta fyllt út. Allar upplýsingar sem notendur fylla inn í viðmótið flæða síðan áfram í Excel-skjal viðkomandi.

Fjár­festingin nú er leidd af BlueYard Capital fjár­festinga­sjóðnum með þátttöku aðila á borð við Slack Fund, Acequia Capital og engla­fjár­festinum Charlie Songhurst.

Í frétt á heimasíðu GRID kemur fram að þær tvær fjár­mögnunar­lotur sem fyrir­tækið hefur þegar gengið í gegnum tryggi rekstur þess miðað við fyrir­liggjandi áætlanir fram eftir árinu 2021. Fjár­mögnunin nú gefi GRID rými til að einbeita sér að því að byggja upp fyrstu vöruna sína, koma henni á markað og vaxa þaðan.

Á næstu misserum mun GRID ráða fleira fólk til starfa til að sinna þeim vexti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár