Hamingjan er í fjölskyldunni, tunglinu, vatnsheldum maskara og kaffi

Fyrirgefning, eftir­vænting og þakklæti eru góð verkfæri til að stuðla að hamingjunni. Að ákveða að morgni sérhvers dags að hann verði góður, leita sátta, sjá það góða í fari fólks og vera óhrædd við að teygja sig út til fólks. Þessar leiðir hefur Olga Björt Þórðar­dóttir, ritstjóri og útgefandi Hafnfirðings, farið til að auka hamingju sína.

Hamingjan
Ham­ingjan Að mati Olgu Bjartar Þórð­ar­dóttur er ham­ingjan víða, meðal ann­ars í því að geta tjáð sig óhindrað. „Að vera með fólki sem tekur manni eins og maður er skiptir miklu máli til að vera ham­ingju­söm. Öll sím­töl frá pabba eru ham­ingju­vekj­andi, hann er svo hvetj­andi og mín helsta fyr­ir­mynd,“ segir Olga Björt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Olga Björt Þórðar­dóttir, ritstjóri og útgefandi Hafnfirðings, finnur hamingjuna víða. Í fjöl­skyldu sinni, fyrsta kaffi­bolla dagsins, vatns­heldum maskara og tunglinu. Hún segir að það að finna, rækta og virkja sem flesta hæfileika sína sé ein af leiðunum til aukinnar hamingju og til að stækka tengsla- og vinanetið hikar hún ekki við að hringja í ókunnugt fólk sem hana langar til að kynnast.

Hvað er svona óskaplega gott við fyrsta kaffi­bolla dagsins? „Kaffi er einfald­lega gott á bragðið. Þó að áhrifin af því komi ekki fram fyrr en eftir 20 mínútur, þá er eitthvað við þetta augnablik þegar ég á stund með sjálfri mér, búin að koma stelpunum í skólann og er að undirbúa daginn. Mér finnst þetta svo góð tilfinning. Þarna er ég hamingjusöm.“ 

Olga tekur þá ákvörðun að morgni sérhvers dags að hann verði góður. „Þannig verð ég móttækilegri fyrir því sem dagurinn hefur hugsanlega í för …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár