Til sjávar og sveita ýtt úr vör

Viðskipta­hraðallinn er ætlaður til að efla frumkvöðla­starfi í sjávar­útvegi og land­búnaði.

Til sjávar og sveita er fyrsti viðskipta­hraðallinn á Íslandi sem einblínir á nýjar lausnir og sjálfbæra verðmæta­sköpun í land­búnaði og sjávar­útvegi, en honum var ýtt úr vör í morgun. Icelandic Startups hefur í samstarfi við Íslenska Sjávar­klasann komið á fót Til sjávar og sveita með fulltingi IKEA á Íslandi, Matarauðs Íslands, HB Granda og Landbúnaðar­klasans.

Opnunar­viðburður hraðalsins fór fram á veitinga­stað IKEA í Kauptúni en Kristján Þór Júlíusson, Land­búnaðar- og sjávar­útvegs­ráðherra opnaði formlega fyrir umsóknir.

„Það eru í raun lítil takmörk fyrir því hvað hægt er að ná fram ef við búum svo um hnútana að fólk með góðar hugmyndir, frumkvöðlar, fái að njóta sín,“ sagði Þórarinn Ævarsson, framkvæmda­stjóri IKEA á Íslandi, en hann og Þór Sigfússon, stofnandi Sjávar­klasans, fluttu erindi við opnunina.

Auk þess sem Ingi Björn Sigurðsson, verkefna­stjóri hjá Icelandic Startups sagði frá fyrir­komulagi hraðalsins.

Loks kynntu frumkvöðlarnir frá Jurt Hydroponics fyrstu vöru sína, Nordic Wasabi, sem er hreint wasabi ræktað á sjálf­bæran máta á Íslandi.

Í gegnum þessa bakhjarla fá fyrir­tækin aðgang að tengsla­neti og fagþekkingu sem á engan sinn líka á Íslandi. Ætlunin er að hraðallinn verði uppspretta nýrra vara og þjónustu og varpi ljósi á þau tækifæri sem felast í sjálf­bærri nýtingu auðlinda á Íslandi. Viðskipta­heimurinn er að taka örum breytingum en vaxtar­tækifæri íslensks atvinnu­lífs felast í auðlindum og hugviti með sjálfbærni að leiðar­ljósi. Markmiðið með hraðlinum er þannig að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrir­tækja í fremsta flokki land­búnaðar og sjávar­útvegs, að því er fram kemur í tilkynningu.

Til sjávar og sveita hefst í mars á næsta ári og stendur yfir í níu vikur. Allt að tíu teymi verða valin og fá aðgang að full­búinni vinnu­aðstöðu á tíma­bilinu auk stuðnings og sérþekkingar til að vinna að markmiðum sínum. Þau fá jafnframt ráðgjöf og aðstoð frá reyndum sérfræðingum, fjár­festum og frumkvöðlum úr atvinnu­lífinu meðan á hraðlinum stendur. Að lokum verður haldinn Uppskeru­dagur þar sem teymin kynna hugmyndir sínar fyrir fjár­festum og öðru áhrifa­fólki úr atvinnu­lífinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár