Íslendingar gætu orðið leiðandi í vernd og notkun persónuupplýsinga

Nýtt samstarf Dattaca Labs við breska tækni­fyrirtækið Digi.me býður upp á mikla möguleika í ljósi nýrrar löggjafar Evrópu­sambandsins um meðhöndlun persónu­upplýsinga.

Á myndinni er Julian Ranger, stofnandi Digi.me á milli Frey Ketilssyni og Bala Kamallakharan, stofnenda Dattaca
Á mynd­inni er Julian Ranger, stofn­andi Digi.me á milli Frey Ket­ils­syni og Bala Kam­allakharan, stofn­enda Dattaca Mynd: Dattaca

Íslenska fyrir­tækið Dattaca Labs hefur hafið samstarf við breska tækni­fyrirtækið Digi.me um þróun í miðlun persónu­upplýsinga milli fyrir­tækja og einstaklinga, samkvæmt frétta­tilkynningu. Samstarfið býður upp á spennandi tækifæri, sérstak­lega í ljósi nýrrar löggjafar Evrópu­sambandsins um meðhöndlun persónu­upplýsinga.

Dattaca Labs er íslenskt sprota­fyrirtæki stofnað af Frey Hólm Ketils­syni og fjár­festinum Bala Kamallakharan. Fyrir­tækið sérhæfir sig í miðlun persónu­upplýsinga til fyrir­tækja, meðal annars í heilbrigðis­tækni, fjármála-og fjarskipta­þjónustu auk þróunar í interneti hluta (e. Internet of Things). Digi.me. er enskt tækni­fyrirtæki stofnað af Julian Ranger, en tilgangur þess er að safna og geyma persónu­upplýsingar einstaklinga án þess að hafa aðgang að þeim.

Fyrir­tækin binda miklar vonir við samstarfið, en það er fyrst um sinn hugsað um íslenskan markað. „Við erum sannfærð um að Ísland geti orðið leiðandi í byltingunni sem fram undan er í þessari tækni­þróun” segir Julian Ranger, stofnandi Digi.me.

Íslendingar fyrstir með aðgang að stafrænum heilbrigðisupplýsingum

Í síðustu viku kom fram tilkynning um samstarf Dattaca Labs og Digi.me við Landlækni um opnun heilbrigðis­upplýsinga Íslendinga. Þannig hafi Íslendingar orðið fyrsta þjóðin í heiminum þar sem íbúar þess eigi aðgang að stafrænum afritum af heilbrigðis­upplýsingunum sínum. Þetta framtak fetar í fótspor Open Notes verk­efnisins sem gefur 14 milljónum Bandaríkja­manna aðgang að heilbrigðis­upplýsingunum sínum, en það verkefni hefur leitt til aukins heil­brigðis og minni heilbrigðis­útgjalda samkvæmt rann­sóknum. 

Sóknarfæri vegna nýrrar löggjafar

Á næsta ári mun ný löggjöf Evrópu­sambandsins um persónu­upplýsingar (EU GDPR) taka gildi, en markmið hennar er að skilgreina rétt einstaklinga að eigin persónu­upplýsingum. Meðal breytinga sem löggjöfin hefur í för með sér eru auknar kröfur um samþykki einstaklinga fyrir vinnslu persónu­upplýsinga, en samstarf Dattaca Labs og Digi.me felst meðal annars í því að miðla þessum upplýsingum til fyrir­tækja á forsendum einstaklinganna. „Innleiðing þessarar reglu­gerðar er í rauninni grunnurinn að þessu samstarfi” segir Freyr Ketilsson, stofnandi Dattaca, í viðtali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár