Finn tvíburasystur mína oft á sófanum heima

Hrafnhildur Ólafs­dóttir segir leik­skóla­starfið hafa mótað sig mest.

Ég held það sé í raun alltaf mikil breyting að flytja í fyrsta sinn af æsku­heimilinu. Sérstak­lega fyrir mig þar sem ég hef nánast sofið til fóta hjá tvíbura­systur minni frá því ég fæddist. Það eru líka ákveðin viðbrigði að flytja í annað hverfi. Nú labba ég til dæmis í vinnuna, keyri nánast ekki neitt og kaupi minn eigin klósett­pappír. Það er svona mesta breytingin við að flytja að heiman, en þrátt fyrir það finn ég tvíbura­systur mína oft á sófanum heima hjá mér. Annað sem hefur mótað mig einna mest á lífs­leiðinni er að hafa starfað á leikskóla. Ef það væri launað eins og að vinna á veitinga­stað þá væri ég eflaust ennþá í því. Mér fannst það alveg sjúklega gefandi og skemmtilegt starf. Sérstak­lega sem dóttir leik­skóla­kennara, þá fannst mér það ótrúlega leiðinlegt að þurfa fara úr starfi bara vegna þess að mig langaði að kaupa mér íbúð, en ekki af því því mér fannst starfið leiðinlegt eða ég hefði ekki áhuga á því. Það er eitthvað sem mér finnst að allir ættu að taka til sín. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár