Al­þingi Íslend­inga eigi að treysta kjós­endum

Tveir þing­menn Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar gerðu svar for­sæt­is­ráð­herra varð­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður við ESB frá því í gær að umtals­efni á þing­inu í dag og gagn­rýndu hana fyrir svörin. „Hvað er að ótt­ast?“ spurði önnur þeirra.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar telja að Íslend­ingar eigi að fá að kjósa sjálfir í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort halda eigi áfram með aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) eins og þings­á­lyktun Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar segir til um.

Þær fjöll­uðu báðar um málið undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag, sem og svar Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í gær.

Þór­hildur Sunna sagði í sinni ræðu að það hefði verið áhuga­vert að heyra svar for­sæt­is­ráð­herr­ans. „Spurð að því hvort hún styddi að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið yrði haldin á þessu ári sagði hún sjálf­sagt að efna til slíkrar atkvæða­greiðslu en bara ef fyrir lægi aug­ljós meiri hluti meðal þing­manna fyrir aðild að sam­band­inu.“

Uppsuða af „aumri afsökun“ Bjarna

Þing­mað­ur­inn sagði að þetta svar væri upp­suða af aumri afsökun fjár­mála­ráð­herr­ans, Bjarna Bene­dikts­sonar, fyrir því að „hafa svikið lof­orð“ sem hann gaf kjós­endum sínum um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sama mál fyrir kosn­ingar 2013, þar sem hann tal­aði um póli­tískan ómögu­leika.

„Sá ómögu­leiki fólst í því að hann og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins voru á móti ESB-aðild og þar af leið­andi var ómögu­legt að standa við gefin lof­orð og leyfa ein­hverju jafn ómerki­legu og þjóð­ar­vilja að ráða för í þessu risa­vaxna hags­muna­máli allrar þjóð­ar­innar,“ sagði hún.

Þarf að efna til opinnar, fræðandi og málefnalegrar umræðu

Þá telur Þór­hildur Sunna að svar for­sæt­is­ráð­herr­ans frá því í gær sé sér­stak­lega áhuga­vert vegna þess að í fyrsta sinn í meira en ára­tug segj­ast fleiri fylgj­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en þeir sem eru and­vígir.

„Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar eru því þeirrar skoð­unar að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur séu ein­ungis not­hæfar og fram­kvæm­an­legar ef meiri­hluti þjóð­ar­innar hefur sömu afstöðu og þau til þess sem spurt er um. Raunar hefur fjár­mála­ráð­herra gengið svo langt að kalla alla umræðu um þessa stóru við­horfs­breyt­ingu gagn­vart aðild að ESB ósmekk­lega vegna stríðs­á­stands í Evrópu og gerir þannig lítið úr auknum vilja kjós­enda til að styrkja sam­starf Íslands við önnur frið­elsk­andi ríki í álf­unni.“

Samkvæmt Þórhildi Sunnu líta Píratar svo á að þjóðin eigi rétt á að láta vilja sinn í ljós og þess vegna hefðu þau, í sam­vinnu við Sam­fylk­ingu og Viðreisn, lagt fram til­lögu um að efnt skuli til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræður við ESB fyrir lok árs. „Auðvitað þarf að efna til opinnar, fræð­andi og mál­efna­legrar umræðu. Leiði sú afstaða í ljós að farið skuli af stað í aðild­ar­við­ræður skal það gert alger­lega óháð því hvað ein­stökum þing­mönnum eða flokkum finnst um þá afstöðu.“

Mistök að bera ákvörðunin ekki undir þjóðina á sínum tíma

Þórunn hóf sína ræðu á því að nefna fyrr­nefnda til­lögu Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar. „Eins og allir hér vita sam­þykkti Alþingi árið 2009 að hefja aðild­ar­við­ræður við ESB. Þá var sú ákvörðun ekki borin undir þjóð­ina og ég ætla að fá að segja það hér að ég er sam­mála hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra sem sagði úr þessum ræðu­stóli í gær að það hefðu verið mis­tök að gera það ekki þá.“

Hún sagð­ist þó ekki draga sömu álykt­anir aðrar af stöð­unni eins og for­sæt­is­ráð­herra. „Alþingi Íslend­inga á að treysta kjós­endum fyrir þess­ari ákvörðun og bera undir þá í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hvort taka eigi upp þráð­inn í aðild­ar­við­ræð­unum við Evr­ópu­sam­bandið. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla myndi rjúfa kyrr­stöð­una sem ríkt hefur í Evr­ópu­málum í tæp­lega ára­tug hér á landi.“

Hvað er að óttast?

Benti Þórunn á að Alþingi hefði aldrei sam­þykkt til­lögu um að draga aðild­ar­um­sókn­ina til baka og að fram­kvæmda­stjórn ESB liti svo á að við­ræð­unum hefði aldrei verið slitið þrátt fyrir bréfa­skrif þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Gunnars Braga Sveins­sonar.

„Það er því hægur vandi að taka upp þráð­inn í við­ræð­unum. Hvers vegna skyldu rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir ótt­ast það svo mjög að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að halda áfram og taka upp þráð­inn í aðild­ar­við­ræð­unum? Hvað er að ótt­ast? Hvers vegna eru stjórn­ar­flokk­arnir fastir í for­tíð og kyrr­stöðu í Evr­ópu­mál­unum þegar fram­tíðin blasir við og allar þjóðir í Evrópu eru að end­ur­skoða í grund­vall­ar­at­riðum örygg­is­hags­munir sína og þjóð­ar­hags­munir sína, og nægir að nefna Þýska­land, Svíþjóð og Finnland í því efni?“spyr hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár