Íslandi vel borgið þar sem það er

For­sæt­is­ráð­herra telur að Íslend­ingar eigi ekki að vera í Evr­ópu­sam­band­inu og að ef meiri­hluti væri fyrir því á þingi að halda aðild­ar­við­ræðum áfram þá yrði „leitað leið­sagnar þjóð­ar­innar áður en fram væri haldið“.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hvort hún styddi end­ur­flutta þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald við­ræðna um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Katrín sagði meðal ann­ars að hún teldi það mik­il­vægt að meiri­hluti væri á þing­inu til að fylgja eftir aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu. „Ég hefði lagt á það áherslu ef sá meiri­hluti er fyrir hendi hér á þingi að sá meiri­hluti leit­aði leið­sagnar þjóð­ar­innar áður en fram væri haldið.“

Logi hóf mál sitt á að rifja upp að árið 2015 hefði verið lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga á þingi um að fela rík­is­stjórn­inni að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður við ESB, um fulla aðild Íslands.

Hann rifj­aði einnig upp að for­maður VG, Katrín Jak­obs­dóttir, hefði mælt fyrir til­lög­unni í fjar­veru for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem var fyrsti flutn­ings­maður, og meðal ann­ars sagt í flutn­ings­ræð­unni:

„Í þessu til­viki tel ég að lýð­ræð­is­rökin vegi þyngst, að málið sé af þeirri stærð­argráðu og á því séu svo margar hliðar að eðli­legt sé að við leitum leið­sagnar þjóð­ar­innar og föll­umst á að hlíta lýð­ræð­is­legri leið­sögn hennar.“

Logi sagð­ist vera hjart­an­lega sam­mála orðum for­manns VG og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

„En nú var sams konar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu dreift hér í dag af þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum. Því leikur mér ein­fald­lega for­vitni á að vita hvort hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra sé ekki örugg­lega enn þeirrar skoð­unar að málið sé af þeirri stærð­argráðu að eðli­legt sé að leita leið­sagnar þjóð­ar­innar,“ sagði hann og spurði hvort hún styddi end­ur­flutta þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald við­ræðna um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu.

Málið er ekki svart/hvítt

Ráð­herr­ann svar­aði og sagð­ist telja að sú veg­ferð að sækja um aðild á sínum tíma hefði verið far­sælli ef ráð­ist hefði verið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu áður en sú umsókn var lögð fram.

„Ég ætla að segja það hér í þessum stól, og ég held raunar að ég hafi sagt það áður, að ég held að það hafi verið mis­tök hjá mér og öðrum þeim sem greiddu atkvæði gegn þeirri til­lögu að ráð­ast í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu áður en sótt var um aðild. En þannig var það. Þá var það lyk­il­at­riði, í þáver­andi stjórn­ar­sam­starfi Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar, að þessi umsókn yrði lögð fram og að ekki yrði ráð­ist í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu áður og við stóðum við það. Ég hef svo sem ekki skipt um skoðun á því að ég tel mjög mik­il­vægt að leita leið­sagnar þjóð­ar­innar í slíkum stórum málum. Ég tel, eins og ég sagði, að það hefði betur verið gert þannig 2009. En ég vil líka segja að mér finnst mik­il­vægt að hér á Alþingi liggi fyrir hver afstaða meiri hluta þing­manna er gagn­vart því að fara í slíka veg­ferð, að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Ég sé að þetta mál er komið aftur á dag­skrá, ekki síst vegna þró­unar í alþjóða­málum. En ég ætla að líka að upp­lýsa það alveg heið­ar­lega að ég er þeirrar skoð­unar að Íslandi sé vel borgið þar sem það er, að við eigum ekki að ráð­ast í það að fara inn í Evr­ópu­sam­bandið. Þá afstöðu hef ég mótað með mér í tölu­vert langan tíma vegna þess að ég tel ein­fald­lega að gall­arnir séu miklu fleiri en kost­irnir, þótt ég sé fyrsta mann­eskjan til að við­ur­kenna að þetta er ekki svart/hvítt mál,“ sagði hún.

Aðildarumsókn aldrei verið dregin til baka af Alþingi

Logi spurði í annað sinn og sagði að sama hvaða skoðun menn hefðu á aðdrag­and­anum síð­ast væri aðild­ar­um­sókn, sem lögð var fram á Alþingi á sínum tíma, í fullu gildi.

„Hún hefur aldrei verið dregin til baka af Alþingi. En það er áhuga­vert að hæst­virtur ráð­herra segi: Jú, það er mik­il­vægt að spyrja þjóð­ina en við þurfum samt að heyra hvað meiri hluta þing­heims finnst um aðild. Þar er hún vænt­an­lega að vísa til hins póli­tíska ómögu­leika sem hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hefur talað mikið um. Sjálf hlýtur hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra ein­hvern veg­inn að hafna svo­leiðis kenn­ingum vegna þess að hennar flokkur, sem er á móti þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unni og á móti aðild­inni að NATO, gerir það samt að hluta af stjórn­ar­sátt­mál­anum,“ sagði hann og ítrek­aði spurn­ingu sína: „Mun hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra styðja það að þjóðin fái að greiða atkvæði um hvort við höldum áfram aðild­ar­við­ræðum?“

Aðild að NATO og aðild að ESB ekki það sama

Katrín kom í pontu í annað sinn og sagði að henni fynd­ist aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ekki sam­bæri­leg „því að sá er mun­ur­inn á að Ísland er aðili að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og hefur verið það frá stofnun þess. En hitt er allt önnur ákvörðun, að ákveða að fara aftur af stað í að sækja um aðild að ESB.“

Hún sagði það hins vegar vera rétt hjá Loga að Alþingi hefði aldrei dregið umsókn um aðild að ESB til baka og hefði það verið mjög umdeilt á sínum tíma, meðal ann­ars hjá henni.

„Mér hefði þótt betri bragur á því að það hefði verið gert á þeim tíma og raunar er það svo, ef ég man rétt, að það er annar flokkur í stjórn­ar­and­stöðu bein­línis með til­lögu um að draga umsókn­ina til baka af hálfu Alþingis og ef mig mis­minnir ekki er það Flokkur fólks­ins. Ég vil bara segja það heið­ar­lega hér að að mínu viti tel ég mik­il­vægt að það sé meiri­hluti á þing­inu til að fylgja eftir aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu. Ég hefði lagt á það áherslu ef sá meiri­hluti er fyrir hendi hér á þingi að sá meiri hluti leit­aði leið­sagnar þjóð­ar­innar áður en fram væri haldið,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár