Melinda Gates opnar dyrnar fyrir íslenskum sprotum

Melinda Gates hefur sett á laggirnar samkeppnis­sjóð með Microsoft fyrir konur. Ísland er meðal þeirra landa sem keppnin nær til.

Melinda Gates hefur sett af stað samkeppni fyrir frumkvöðla og sprota­fyrirtæki, þar sem þeir hafa möguleika á því að fá frá henni 6 milljónir Bandaríkja­dala, eða um 750 milljónir króna.

Skilyrði fyrir þátttöku er að nýsköpunar­fyrirtækið sé að hluta í eigu konu sem er eldri en 18 ára, eða að kona sé einn af stofn­endum sprota­fyrir­tækisins.

Melinda, sem er eigandi Gates Foundation ásamt eigin­manni sínum, Bill Gates, annars stofnanda Microsoft, tilkynnti um samkeppni í byrjun vikunnar, en samstarfs­aðili hennar í verk­efninu er Microsoft og sjóður á vegum fyrir­tækisins sem nefnist M12.

Tveir sprotar munu fá 2 milljónir Bandaríkja­dala, um 250 milljónir króna, og tveir sprota munu svo fá 1 milljón Bandaríkja­dala, eða um 125 milljónir króna, þar sem verkefnin eru á sviði tæknilegra áskorana og rannsókna.

Tilkynnt verður um úrslitin á sérstakri athöfn 18. til 19. mars á næsta ári, í Sílikondalnum í Kaliforníu.

Teymi á vegum Pivotal Ventures, fjár­festinga­sjóðs Melindu, mun velja sprota til þátttöku í verk­efninu, en Pivotal er stærsti fjár­festinga­sjóður heims, sem hefur það sérhæfða hlutverk að fjárfesta í konum og verkefnum sem stuðla að auknu jafnrétti og aukinni atvinnu­þátttöku kvenna.

Pivotal hefur fjárfest í tugum sprota­fyrirtækja á undan­förnum tveimur árum, en fjár­festingar sjóðsins hafa farið leynt að miklu leyti.

Í tilkynningu Melindu vegna verk­efnisins með Microsoft, er sérstak­lega tiltekið að það sé opið fyrir frumkvöðlum og sprota­fyrirtækjum í mörgum löndum, og Ísland er nú eitt þeirra, en sú var ekki raunin í fyrra.

Löndin sem koma til greina, auk Banda­ríkjanna og Íslands, eru 33 önnur ríki, þar á meðal Norður­löndin öll, en þau koma ný inn á listann þetta árið.

Melinda tilkynnti um það 12. september síðastliðinn að hún ætlaði að fjárfesta einum milljarði Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 125 milljörðum króna, í verkefnum sem stuðla að auknu jafnrétti, á næstu fjórum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár