Eigendur kísilvers greiði til baka ríkisstyrki áður en þeir fjárfesti í mengandi verksmiðju

Birgir Þór­ar­ins­son gerði hug­myndir eig­enda kís­il­vers­ins á Bakka um kaup á kís­il­málm­verk­smiðj­una í Helguvík að umtals­efni á Alþingi í vik­unni.

Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins veltir því fyrir sér hvort eig­endur kís­il­vers­ins á Bakka eigi að greiða til baka þær 4.221 millj­ónir króna sem hafi farið í jarð­göng, lóða­fram­kvæmdir og þjálf­un­ar­kostnað starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins áður en þeir fjár­festi í „meng­andi verk­smiðju í Helguvík sem íbú­arnir vilja ekki“.

Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þings­ins í síð­ast­lið­inni viku.

Kjarninn greindi frá því fyrr í mán­uð­inum að Arion banki og PCC SE, meiri­hluta­eig­andi kís­il­vers­ins PCC BakkiSil­icon hf. á Húsa­vík, hefðu und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu varð­andi mögu­leg kaup á kís­il­verk­smiðj­unni í Helgu­vík.

Birgir sagði í ræðu sinni að áfalla­saga kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík væri flestum kunn. „Þegar verk­smiðjan var starf­andi þurftu margir íbúar í nágrenni hennar að leita sér lækn­is­hjálpar vegna meng­unar. Að lokum fór svo að rekst­ur­inn var stöðv­aður og Arion banki tók verk­smiðj­una yfir vegna skulda. Bankinn stefndi síðan að því að selja hana aftur og lýstu íbúar á svæð­inu almennt ánægju með þau áform. Það hefur sem sagt verið mikil and­staða meðal íbúa í Reykja­nesbæ við þessa verk­smiðju, kannski skilj­an­lega.“

Vísaði hann í fréttir af vilja­yf­ir­lýs­ing­unni. „Þau áform hafa valdið hörðum við­brögðum meðal íbúa í Reykja­nesbæ sem ótt­ast að til standi að end­ur­reisa verk­smiðj­una. Rík­is­sjóður eða skatt­greið­endur studdu mynd­ar­lega við kís­il­verk­smiðj­una á Húsavík á sínum tíma. Þannig borg­aði rík­is­sjóður 3.525 millj­ónir í sér­stök jarð­göng ein­göngu fyrir verk­smiðj­una, sem almenn­ingur má ekki nota, 460 millj­ónir í lóða­fram­kvæmdir við verk­smiðj­una og 236 millj­ónir vegna þjálf­un­ar­kostn­aðar starfs­manna. Fyr­ir­tækið fékk síðan 40 pró­sent afslátt af hafn­ar­gjöldum í 14 ár.

Nú dreg ég ekki úr mik­il­vægi kís­il­verk­smiðj­unnar á Bakka fyrir atvinnustigið í Norð­ur­þingi en er ekki rétt, má ekki hugsa það sem svo, að fyr­ir­tækið greiði rík­is­sjóði til baka þær 4.221 millj­ónir króna sem það fékk í styrki frá skatt­greið­endum áður en það fer að fjár­festa í meng­andi verk­smiðju í Helguvík sem íbú­arnir vilja ekki?“ spurði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár