Milljónir barna í Afganistan munu glíma við bráðavannæringu næstu vikur

Samkvæmt frétta­tilkynningu frá Unicef er áætlað að helmingur afganskra barna undir fimm ára aldri muni glíma við bráða­vannæringu á næstu vikum og mánuðum. Yfirmenn Unicef, Barna­hjálpar Sameinuðu þjóðanna og Matvæla­áætlunar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan segja skelfingar ástand ríkja í næringar­málum barna og staða fæðu­öryggis sé verulega slæm um allt land.

Tvíburarnir Aisha og Youssef
Tví­burarnir Aisha og Youssef Tví­burarnir Aisha og Youssef, 4 mán­aða, fá með­höndlun við vannær­ingu á nýbura­deild í Herat sem nýtur stuðn­ings UNICEF. 90 nýburar fá nú með­höndlun á deild­inni þar sem pláss er fyrir 60. Mynd: UNICEF

Í Afganistan standa fjórtán milljón íbúar frammi fyrir alvarlegu fæðu­óöryggi og 95% heimila í þar í landi eiga ekki nóg að borða. Þá er einnig ljóst að 3,2 milljónir barna undir fimm ára aldri munu glíma við bráða vannæringu það sem eftir lifir þessa árs og ein milljón þeirra verður í bráðri lífshættu án meðhöndlunar. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu UNICEF. 

Hervé Ludovic De Lys, yfirmaður UNICEF í Afganistan og Mary Ellen McGroarty yfirmaður Matvæla­áætlunar Sameinuðu þjóðanna, heimsóttu borgina Herat í Afganistan sem nú er undir stjórn Talibana. Eftir tveggja daga heimsókn ákváðu þau að senda frá sér sameiginlegt neyðar ákall til heims­byggðarinnar vegna stöðu mála þar í borg sem og landinu öllu. 

De Lys og McGroartyHerve Ludovic De Lys (UNICEF) og Mary-Ellen-McGroarty (WFP) heim­sækja dreif­ing­ar­mið­stöð Mat­væla­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­ar­innar í Herat-borg þar sem rúm­lega þús­und heim­ili fá mat­ar­að­stoð.

Ófremdarástand í Herat 

Dagblaðið The Washington Post fjallaði í dag einnig um ástandið í borginni Herat undir stjórn Talibana. Þar segir að í þrjá daga og nætur hafa lík fjögurra meintra mann­ræningja hangið úr bygginga­krönum. Þrjú þeirra hafa verið látin hanga yfir fjölförnu umferðar­torgi fyrir alla borgarbúa að sjá. Talsmenn Talíbana í Herat hafa sagt gjörninginn vera skilaboð um ekkert umburðar­lyndi og skjóta réttvísi fyrir þá sem brjóta lögin.

Skilaboð TalibanaLík manna hafa verið hengd upp í bygg­ing­ar­krana í Herat borg í Afganist­arn sem skila­boð um að Tali­banar líða ekki lög­brjóta.

Síðastliðinn þriðjudag var önnur óhugnanleg tilraun gerð til þess að sýna fram á afstöðu Talibana gegn glæpum í borginni Herat. Lík þriggja meintra ræningja voru látin hanga úr byggingar gröfum fyrir alla að sjá. Þessar refsingar Talibana hafa ekki verið tilkynntar í öðrum borgum landsins fram að þessu.

Gat ekki lengur haft barnið á brjósti

De Lys og McGroarty hittu í Herat móðurina Jahan Bibi sem á 18 mánaða gamla dóttur sem nú liggur inni á sjúkra­húsi í borginni til að fá meðferð við alvarlegri bráða­vannæringu. Jahan kom með dóttur sína vannærða á sjúkra­húsið því hún gat ekki lengur gefið henni brjóst vegna hungurs. „Við eigum engan mat heima. Við erum að selja allt sem við eigum til að kaupa mat, en samt á ég ekkert að borða. Ég er veikburða og framleiði ekki neina mjólk fyrir barnið mitt,“ sagði Jahan. 

Samkvæmt könnun sem Matvæla­áætlun Sameinuðu þjóðanna lét framkvæma kom í ljós að 95% af heimilum í Afganistan fá ekki nóg að borða. Full­orðnir borði minna og sleppi máltíðum svo börn þeirra geti fengið meira. „Við höfum gríðar miklar áhyggjur af þessum fórnum sem fjöl­skyldur neyðast til að færa,“ segir McGroarty. 

„Ég er veik­burða og fram­leiði ekki neina mjólk fyrir barnið mitt“
Móðir í Herat
Jahan Bibi

„Ef Við gerum ekki meira núna mun vannæring aðeins verða stærra vandamál og alvarlegra. Alþjóða­samfélagið verður að láta af hendi fjár­magnið sem okkur var lofað fyrir nokkrum vikum. Ef ekki, gætu áhrifin orðið óaftur­kallanleg.“

Að sögn De Lys hrakar heilsu barna og mæðra í Afganistan mjög hratt meðal annars vegna þess að þau hafa ekki aðgang að hreinu vatni. „Börn eru að veikjast og fjöl­skyldur geta ekki sótt nauðsyn­lega meðferð. Faraldur mislinga og niður­gangs vegna óhreins vatns mun aðeins auka á þessa neyð,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár