Þrjú stór Coca-Cola félög í Evrópu sameinast

Drykkjar­vörufélögin Coca-Cola Enterprises, Coca-Cola Iberiian Partners og Coca-Cola Erfischungsgetranke AG kynntu í dag rekstrar­samruna félaganna tveggja undir nafninu Coca-Cola European Partners Plc. Félagið verður stærsti einstaki átöppunar­aðili heims á drykkjar­vörum Coca-Cola fyrir­tækisins miðað við heildar­tekjur. Vífilfell, átöppunar­aðili Coca-Cola drykkja á Íslandi, verður hluti af nýja félaginu í gegnum spænsk-ættaða félagið Coca-Cola Iberian Partners Group.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vífil­felli í dag, þar sem fjallað er um samruna félaganna þriggja í Evrópu. „Vífilfell mun, sem hluti af stærsta sjálf­stæða Coca-Cola átöppunar­aðila heims, hafa aðgang að meiri þekkingu og reynslu í fram­leiðslu drykkja­vara en það hefur nokkurn tíma áður haft í sögu sinni, en fyrir­tækið rekur sögu sína hér á landi aftur til ársins 1942. Aukin áhersla verður á fjár­festingar hér á landi, breytilegar þarfir neytenda og vöxt og viðgang fyrir­tækisins,“ segir í tilkynningu.

Coca-Cola Iberian Partners er átöppunar­fyrirtæki The Coca-Cola Company á Spáni, Portúgal og Andorra. Félagið eignaðist Vífilfell í byrjun árs 2011 en áður hafði félagið að mestu verið í eigu Þorsteins M. Jónssonar.

Coca-Cola Enterprises Inc. (CCE) er eitt stærsta, sjálf­stæða átöppunar­fyrirtæki Coca-Cola í Vestur-Evrópu. Félagið CCE á einkarétt á átöppun vara the Coca-Cola Company í Belgíu, Frakk­landi, Bretlandi, Lúxemborg, Mónakó, Hollandi, Noregi og Svíþjóð. CCE rekur 17 verksmiðjur víðsvegar um Evrópu þar sem það fram­leiðir tæp 90% af vörunum á þeim mörkuðum þar sem þeirra er neytt.

Coca-Cola Erfrischungsgetränke AG (CCEAG) er stærsta fyrirtæki á sviði drykkja í Þýska­landi en það seldi um 3,8 milljarða lítra árið 2014. Stjórn Coca-Cola Enterprises, Coca-Cola Iberian Partners og The Coca-Cola Company hafa samþykkt sameininguna. Fyrir­hugaður samruni er háður samþykki hluthafa CCE, samþykki eftirlits­aðila og öðrum venju­bundnum skilyrðum. Búist er við að samruninn gangi í gegn á öðrum ársfjórðungi ársins 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár