Þórólfur segir kæru annars endurskoðanda Vísis gegn sér vera tilraun til þöggunar

Hag­fræði­pró­fessor og annar end­ur­skoð­andi útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Vísis hafa staðið í rit­deilu und­an­farnar vikur vegna þess hvernig afla­heim­ildir eru bók­færðar. Pró­fess­or­inn segir kæru end­ur­skoð­and­ans til siða­nefndar vera til­raun til þögg­unar.

Þórólfur Matthíasson
Þórólfur Matth­í­as­son Mynd: Úr safni

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, segir boð­aða kæru Birkis Leós­sonar end­ur­skoð­anda á hendur sér til siða­nefndar Háskóla Íslands, í kjöl­far rit­deilu þeirra á milli um hvernig eigi að bók­færa virði afla­heim­ilda, minna á atvik úr sand­kassa­leikjum bernsku sinnar. „En henni fylgir þó alvar­legur und­ir­tónn því í henni felst til­raun til þögg­unar, ekki bara gagn­vart mér heldur gagn­vart öllum öðrum háskóla­mönnum sem hafa vilja og áhuga á að tjá sig um sjáv­ar­út­vegs­mál og fram­kvæmd sjáv­ar­út­vegs­stefnu. Kannski er það til­gang­ur­inn?“

Þetta skrifar Þórólfur í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag.

Ritdeila í nokkrar vikur vegna virði aflaheimilda

Rit­deila þeirra Þór­ólfs og Birkis hefur snú­ist um gagn­rýni pró­fess­ors­ins á reikn­ings­skil og end­ur­skoðun árs­reikn­ings sjáv­ar­út­vegs­fé­lags­ins Vís­is, sem Birkir hefur haft aðkomu að í sínum störf­um. Skeyti hafa gengið þeirra á milli á síðum blaðs­ins und­an­farnar vik­ur, eða frá því að Þórólfur hóf upp raust sína með grein þann 15. júlí. Þeirri grein svar­aði Birkir þann 21. júlí.

Í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu á þriðju­dag í síð­ustu viku svar­aði Þórólfur Birki á ný og gagn­rýndi starfs­hætti end­ur­skoð­enda Vísis og ann­arra sjáv­ar­út­vegs­fé­laga nokkuð harð­lega. Hann sagði meðal ann­ars að þeir örfáu ein­stak­lingar sem bæru ábyrgð á end­ur­skoðun reikn­inga íslenskra útgerð­ar­fyr­ir­tækja hefðu „skapað þá venju að hunsa skýr fyr­ir­­­mæli í 5. gr. árs­­reikn­ings­­lag­anna og hanga eins og hundar á roði á þröngri túlkun á á­kvæðum 26. greinar bók­halds­­lag­anna“.

Þórólfur vill meina að þetta fyr­ir­komu­lag leiði til þess að óefn­is­leg rétt­indi, þar með talið afla­heim­ild­ir, séu ekki metin með gagn­sæjum hætti í árs­reikn­ingum útgerða. Í grein hans á þriðju­dag­inn sagði að miðað við að „var­an­­legur kvóti sé seldur á 4.000 krónur þorsk­í­­gildið er verð­­mæti kvóta sem Vísir ráð­stafar milli 50 og 60 millj­arðar króna, en ekki um 14 millj­arðar króna eins og bók­­fært er í árs­­reikn­ingi“ og segir pró­fess­or­inn að þar sé „dá­lag­­leg dulin „eign““ á ferð­inni.

„Ég skal ekki ganga svo langt að full­yrða að um lög­­brot sé að ræða, en get ekki séð betur en að gengið sé með skýrum hætti gegn inn­­taki og grunn­hugsun árs­­reikn­ings­­lag­anna. Það getur ekki talist gott vega­­nesti í end­ur­­­skoð­un!“

Þessi skrif tók Birkir óstinnt upp í grein sem birt­ist fyrir viku þar sem hann boð­aði kæru til siða­nefndar Háskóla Íslands vegna skrifa Þórólfs. Hag­fræði­pró­fess­or­inn svar­aði grein­inni svo í dag og ásakar Birki um þöggun.

Kvörtuðu yfir framgöngu Þórólfs „gagnvart sjávarútveginum“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem aðilar sem tengj­ast sjáv­ar­út­vegi hafa kvartað yfir fram­göngu Þórólfs á opin­berum vett­vangi. Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber 2019 að þann 17. júní sama ár hafi barst Þórólfi borist skeyti frá erlendu einka­fyr­ir­tæki um að taka þátt í úttekt sem það var að vinna um sjálf­bærni ýsu og ufsa við Ísland. Ástæðan var sú að annar íslenskur fræði­maður hafði þurft að segja sig frá verk­inu vegna ann­arra verk­efna og sá hafði bent á Þórólf.

Þórólfur samdi við erlenda ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið tveimur dögum síðar um að taka að sér að vinna að úttekt­inn­i.

Þann 1. júlí 2019 barst Þórólfi hins vegar skeyti frá fyr­ir­tæk­inu þar sem kom fram að ákveðnir hags­muna­að­ilar sem greiddu fyrir úttekt­ina hefði umtals­verðan fyr­ir­vara á því að Þórólfur ynni að verk­efn­inu. Hags­muna­að­il­arn­ir, tengdir sjáv­ar­út­vegi, hefðu ein­fald­lega ákveðið að Þórólfur ætti ekki að vera hluti af teym­inu sem ynni úttekt­ina. Engin efn­is­leg skýr­ing var gefin á þessu önnur en sú að það væri ekki óal­gengt að svona lagað gerð­ist í verk­efnum sem fyr­ir­tækið ynni að á Íslandi, og eftir atvikum í öðrum lönd­um.

Skelfing að Þórólfur hefði aðgang að gögnum

Þórólfur hafði áður orðið þess áskynja að hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi hefðu lagst gegn þátt­töku hans í verk­efn­um. Í des­em­ber 2009 var skip­uð eft­ir­lits­nefnd um aðgerðir í þágu ein­stak­linga, heim­ila og fyr­ir­tækja vegna hruns­ins. Til­gangur nefnd­ar­innar meðal ann­ars að gæta þess að sann­girni og jafn­ræðis yrði gætt þegar verið væri að taka ákvarð­anir um end­ur­skipu­lagn­ingu skulda. Í nefnd­ina voru skip­aðir þrír ein­stak­ling­ar: Þórólf­ur, María Thjell, þá for­stöðu­maður laga­stofn­unar Háskóla Íslands sem var for­maður henn­ar, og Sig­ríður Ármanns­dótt­ir, lög­giltur end­ur­skoð­and­i.

Í mars 2010 barst Maríu Thjell, for­manni nefnd­ar­inn­ar, tölvu­póst frá Frið­riki J. Arn­gríms­syni, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ), sam­tök sem í dag heita Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Afrit af póst­inum var sent á alla stjórn og vara­stjórn LÍÚ á þeim tíma.

Í tölvu­póst­inum sagði Frið­rik:

„Blessuð.

Við mig hafði sam­band útgerð­ar­maður sem hlýddi á erindi þitt í morg­un­. Honum til mik­illar skelf­ingar þá lítur svo út að Þórólfur Matth­í­as­son muni hafa aðgang að öllum hans málum í bönk­um. Það vill hann ekki að ger­ist.

Maður á vegum Þór­ólfs hefur nýverið beðið sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um gögn um rekstur og efna­hag þeirra en verið neit­að.

Reynsla útgerð­ar­manna af með­ferð Þór­ólfs á gögnum og fram­ganga hans gagn­vart sjáv­ar­út­veg­inum hefur verið með þeim hætti að á störfum hans ríkir full­komið van­traust.

Mér er kunn­ugt um að fleiri en þessi útgerð­ar­maður vilja ekki að Þórólfur kom­ist í trún­að­ar­gögn sem þá varðar í krafti setu sinnar í eft­ir­lits­nefnd­inni skv. lögum nr. 107/2009 .

Hvað þarf að gera til að verj­ast því?“

Full alvara

Í svar­pósti til Frið­riks, sem sendur var dag­inn eft­ir, lagði nefnd­ar­for­mað­ur­inn áherslu á að nefndin væri bundin algjörum trún­aði vegna þeirra gagna sem hún myndi skoða. Þau yrðu ein­ungis skoðuð inni í bönkum og engin afrit tekin úr húsi. „Nefndin má ekki tjá sig um gögnin á neinn hátt eða nota vit­neskju sem hún fær á grund­velli þeirra, hvorki beint né óbeint. Það á því ekki að vera nokkur þörf á því að hafa áhyggjur af því að Þórólfur hafi sem nefnd­ar­maður aðgang að gögnum þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem fara í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu og gætu því veri skoðuð af nefnd­inn­i.“

Klukku­tíma og tveimur mín­útum eftir að svar­póst­ur­inn var sendur svar­aði Frið­rik hon­um. Í svar­inu var Maríu þakkað fyrir svar­ið. Síðan stóð: „Það er full alvara á bak við það að menn vilja ekki að Þórólfur Matth­í­as­son kom­ist í gögn sem fyr­ir­tæki þeirra varðar og þá skiptir laga­bók­stafur um trúnað engu máli. Það er því ein­dregin ósk að tryggt verði að það ger­ist ekki.“

Síðar sama dag barst Frið­riki svar þar sem honum var greint frá því að nið­ur­staðan væri sú sama og áður. „Ekki er hægt að taka undir þau sjón­ar­mið sem haldið er fram af hálfu LÍÚ.“

Var að vinna að úttekt

Í upp­runa­lega tölvu­póst­inum sem Frið­rik sendi til for­manns eft­ir­lits­nefnd­ar­innar vitn­aði hann til þess að maður „á vegum Þór­ólfs hefur nýverið beðið sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um gögn um rekstur og efna­hag þeirra en verið neit­að.“

Sam­kvæmt tölvu­póstum sem Kjarn­inn hefur undir höndum var þar um að ræða þáver­andi aðstoð­ar­mann Þór­ólfs, en hann var þá að vinna að úttekt á íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Í tölvu­pósti sem aðstoð­ar­mað­ur­inn sendi á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki voru þau beðin um afrit af árs­reikn­ingum sínum fyrir árið 2007, til að tölu­legar upp­lýs­ingar í úttekt­inni gætu verið sem nákvæm­ast­ar. Hægt er að nálg­ast slíka reikn­inga hjá árs­reikn­inga­skrá, en oftar en ekki eru þeir þar í sam­an­dregnu formi og gefa því ekki jafn glögga mynd af stöðu fyr­ir­tækja. Þess vegna voru þau sjálf beðin um að láta rann­sak­endum í té afrit af þeim.

Í tölvu­póst­inum kom fram að reikn­ing­arnir yrðu „Reikn­ing­arnir verða aðeins not­aðir til þess að fá heild­stæða mynd af sjáv­ar­út­veg­inum en ekki til þess að skoða hvert og eitt fyr­ir­tæki nákvæm­lega. Við gerð úttekt­ar­innar verður farið með allar þær upp­lýs­ingar sem tengj­ast ykkur sem trún­að­ar­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár