Karolina Fund: HVAÐ barna- og ungmennatímarit

HVAÐ er hvetjandi og eflandi tímarit fyrir börn og ungmenni sem ýtir undir sjálf­stæða hugsun og heilbrigða sýn á tilveruna og náttúruna. Nú er safnað fyrir útgáfu þess á Karolina Fund.

Ágústa Margrét Arnar­dóttir, fimm barna móðir á Djúpavogi, fann fyrst fyrir vöntun á barna- og
ungmenna­tímariti fyrir um 6 árum síðan þegar dóttir hennar sem þá var 6 ára vildi verða
áskrifandi af tímariti en fátt fannst þeim um góða drætti í þeim efnum.

Öðru hvoru síðan
hefur þetta komið upp í huga Ágústu en það var ekki fyrr en fimmta og síðasta fæðingar­orlofi
lauk í september sl. að hún ákvað að setja hugmyndina í framkvæmd.

Hvernig vaknaði hugmyndin að verk­efninu?
„Þegar dóttir mín bað mig um að fá að vera áskrifandi af tímariti fyrir um 6 árum síðan fannst
mér það frábær hugmynd til að auka lestur og fjöl­breytileika lesefnis sem hún hafði aðgengi
að. Hins vegar fundum við ekkert sem heillaði okkur, mögulega var ég haldin einhverri
nostalgíuþrá eftir einhverju sambærilegu ABC og Æskunni eins ég man þau tímarit frá minni
barnæsku.

Spurningin af hverju er ekki verið að gefa út hvetjandi og eflandi efni fyrir börn og
ungmenni í tímarita formi kom oftar og oftar upp í hausinn á mér. Hugmyndir um efni í svona
tímarit jukust líka jafnt og þétt og trú mín á vöntun á þetta varð til þess að ég ákvað að stíga
fyrstu sporin og kanna áhuga fólks á að taka þátt í þessu með mér. Það má segja að
viðbrögðin frá fólki sem ég þekki, og þekki ekki neitt, gerðu útslagið. Þetta tímarit þarf að
koma út.“

Segðu okkur frá þema verk­efnisins?
„Þemað er hvatning, efling og þátttaka barna og ungmenna. Eigandi fimm börn, sem öll hafa á
einhvern hátt stýrt framvindu verk­efnisins, veit ég hversu mikilvægt er að efla þeirra innri
manneskju og tengja þau við það sem skiptir raun­verulega máli. Þau verða fyrir stans­lausu
áreiti í gegnum netið, bíómyndir, auglýsingar, samfélagið og fleira. Það er látlaust verið að
segja þeim meðvitað eða ómeðvitað hvernig þau eiga að vera, hvað er töff, hvað er gott,
hvað gerðum við þegar við vorum yngri og fleira.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verkefnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár