Segja Gunnar Braga hafa skaðað orðspor HeForShe

Lands­nefnd UN Women for­dæmir þá kven­fyr­ir­litn­ingu og hat­urs­orð­ræðu sem sex þing­menn við­höfðu á Klaustur bar. Nefndin segir Gunnar Braga Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hafa skaðað HeForShe verk­efnið með ummælum sínum.

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveins­son Mynd: UN women

Lands­nefnd UN Women for­dæmir þá kven­fyr­ir­litn­ingu og hat­urs­orð­ræðu sem Gunnar Bragi Sveins­son og fimm aðrir þing­menn við­höfðu á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Lands­nefndin segir Gunnar Braga hafa skaðað orð­spor HeForShe hreyf­ing­una og Bar­bers­hop verk­færakist­unnar með ummælum sínum á barnum.

„Þau ummæli sem vitnað hefur verið til eru algjör­lega óásætt­an­leg og stað­festa hve mikið verk er enn óunnið í bar­átt­unni fyrir kynja­jafn­rétti á Íslandi,“ segir í yfir­lýs­ingu frá lands­nefnd­inni.

Sérstaklega vonsvikin yfir Gunnari Braga

Stella Sam­ú­els­dóttir, fram­kvæmda­stýra UN Women á Íslandi, segir stjórn og starfs­fólk UN Women á Íslandi harmi slegið og að þau séu sér­stak­lega von­svikin yfir ummælum Gunnars Braga Sveins­sonar, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, og segja ummæli hans hafa skaðað orð­spor hreyf­ing­ar­innar en HeForShe hreyf­ingin gengur ekki síst út á að upp­ræta niðr­andi tal um konur.

Gunnar Bragi Sveins­son fékk HeForShe verð­laun fyrir þátt­töku sína í verk­efn­inu árið 2015. Sama ár hélt hann ræðu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í ræð­unni sagði hann að Ísland myndi halda jafn­rétt­is­málum á lofti og lagði áherslu á HeforShe jafn­rétt­isátakið, sem bein­ist að karl­mönnum og ábyrgð þeirra í bar­átt­unni fyrir jafn­rétti kynj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár