Táfýlan kom upp um svissnesku þjófana

Eitt stærsta glæpamál síðari tíma á Ströndum kom upp í sumar þegar par rændi kaup­félagið og faldi góssið á víðavangi. Glöggur sund­laugar­vörður varð til þess að flett var ofan af parinu.

Vettvangurinn
Vett­vang­ur­inn Það var hérna sem sviss­neska glæpap­arið gleymdi sér og skyldi eftir illa lykt­andi sönn­un­ar­gögn. Mynd: DEREK KIND

Stærsta glæpamál síðari ára á Ströndum kom upp í Norður­firði í sumar þegar svissneskt par rændi kaup­félagið og kom sér upp matar­holum í fjarlægð frá tjaldi sínu. Hluti af ráns­fengnum, sem metinn er á tugi þúsunda voru hand­prjónaðir sokkar sem Ágúst í Steins­túni gerir af hreinni list. 

Svissneska parið dvaldi um tíma í Árnes­hreppi og lenti meðal annars í slagviðri. Þá gripu þau til þess að „brjótast“ að næturþeli inn í sund­laugina í Krossnesi og leggja húsið undir sig í því skyni að þurrka pjönkur sínar. Þegar Sigrún Sverris­dóttir sundlaugar­stjóri kom til vinnu sinnar var allt undirlagt af farangri Sviss­lendinganna sem þeir höfðu dreift úr um allt. 

Sigrún fyrir­skipaði þeim að hirða dót sitt, en grunaði parið ekki um annað misjafnt en innbrotið. Þau hlýddu. Nokkru eftir brott­hvarfið varð hún vör við torkennilega og ágenga lykt í búnings­klefa. Við athugun kom í ljós að ullar­sokkum hafði verið troðið á bak við ofn. Við þurrkinn kom óþefurinn. Sigrún sá strax að sokkarnir voru með listileghandbragði Ágústar í Steins­túni. Í ljós kom að hann hafði komið með sokkana í kaup­félagið en ekkert hafði enn verið selt. Aftur á móti voru sokkar horfnir. Þar með byrjaði boltinn að rúlla og glæpa­málið var upplýst. Slóð afbrota þeirra lá víða. Svissneska parið var síðar dæmt fyrir Héraðs­dómi vestfjarða til sektar fyrir brot sín og greiddi kaup­félaginu sitt. Þau voru bókuð af landi brott í byrjun september en ekkert hefur til þeirra spurst um tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár