Arnar Þór ráðinn til Kjarnans

Nýr blaða­maður hóf störf hjá Kjarnanum í byrjun liðinnar viku.

Arnar Þór Ingólfsson
Arnar Þór Ing­ólfs­son Mynd: Bára Huld Beck

Arnar Þór Ingólfsson er nýr blaða­maður á ritstjórn Kjarnans. Hann hóf störf í byrjun liðinnar viku.

Arnar Þór hefur starfað sem blaða­maður í nokkur ár, fyrst í sumar­starfi hjá Austur­frétt á Egils­stöðum árið 2015 og frá 2017 á Morgun­blaðinu og mbl.is.

Hann er 29 ára, stjórnmála­fræðingur að mennt og lauk meistara­námi frá Árósa­háskóla áramótin 2018/2019. Arnar Þór var ráðinn úr stórum hópi umsækjenda í kjölfar þess að Kjarninn auglýsti eftir nýjum blaða­manni í síðasta mánuði, en hátt í hundrað umsóknir bárust vegna starfsins.

Auk þess að sinna almennri frétta­vinnslu mun Arnar Þór hafa umsjón með enskri frétta­þjónustu Kjarnans, sem felur í sér útgáfu á annars vegar daglegu og hins vegar ítarlegra vikulegu frétta­bréfi. Ensku frétta­bréfin eru seld í áskrift. Hægt er að gerast áskrifandi hér.

Kjarn­inn rekur frétta­vef, gefur út dag­­­legan morg­un­­­póst og heldur úti hlað­varps­­­þjón­­­ustu. Þá gefur Kjarn­inn út Vís­bend­ingu, viku­­­rit um við­­­skipti, efna­hags­­­mál og nýsköp­un, og, líkt og áður sagði, ensk frétta­bréf.

Rit­­stjórn­­­ar­­stefna Kjarn­ans er að leggja áherslu á gæði og dýpt í umfjöllunum sín­­um. Að upp­­lýsa almenn­ing í stað þess að ein­blína á að skapa vef­um­­ferð. Þar er lögð áhersla á umfjöllun um alþjóða­­mál, inn­­­lenda þjóð­­mála­um­ræðu, við­­skipti, efna­hags­­mál, stjórn­­­mál og loft­lags- og umhverf­is­­mál.

Lyk­ill­inn að því að gera þetta kleift er Kjarna­­sam­­fé­lag­ið, þar sem ein­stak­l­ingar styrkja Kjarn­ann með mán­að­­ar­­legu fram­lagi. Hægt er að ger­ast styrkt­ar­að­ili hér að neð­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár