Alþjóða Ólympíunefndin: Engin miskunn sýnd í lyfjamálum

Thomas Bach, forseti Alþjóða Ólympíu­nefndarinnar, segir að engin miskunn verði sýnd ef staðfest verður að notkun ólöglegra lyfja til þess að bæta árangur sé eins útbreidd og rann­sóknargögn gefa til kynna, sem The Sunday Times og þýska sjónvarps­stöðin ARD/WRD hafa gert grein fyrir. Samkvæmt þeim var sjöundi hver keppandi í frjálsum íþróttum, af um fimm þúsund manns sem sýni voru tekin úr, með merki um ólöglega lyfja­notkun.

Blóðpruf­urn­ar, sem voru and­lag rann­sókn­ar­inn­ar, voru tólf þúsund tals­ins og eru frá ára­bil­inu 2001 til 2012. Gögn­in eiga ræt­ur sín­ar að rekja til Alþjóða frjáls­íþrótta­sam­bands­ins.


Leaked blood tests reveal one-third of Olympic distance medalists are suspected of doping http://t.co/7ArPV8na15 pic.twitter.com/nHgHHGGg3X


— Sports Illustrated (@SInow) August 3, 2015

Bach segir, í viðtali við BBC, að eins og málin standi núna, sé aðeins um óstaðfestar ásakanir að ræða. Fara þurfi ítarlega í gegnum rann­sóknar­gögnin og fá niður­stöður fram áður en gripið verði til aðgerða. En eitt sé alveg öruggt: engin miskunn verði sýnd, og að Alþjóða Ólympíu­nefndin mun gera allt sem í hennar valdi standi til þess að vernda heiðar­lega íþrótta­ástundun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár