Olíuverðið komið undir 50 Bandaríkjadali á fatið - Rússar í vanda

Olíuverð fór í dag undir 50 Bandaríkja­dali á fatið. Fyrir um átta mánuðum síðan var verðið á fatið af olíu um 110 Bandaríkja­dalir og því hefur verð­fallið verið mikið á skömmum tíma. Í júlí mánuði einum féll verðið um 21 prósent, að því er fram kemur á vef New York Times.

Ástæðuna fyrir verðfalli á olíunni að undan­förnu má meðal annars rekja til þess að eftir­spurn sé að minnka í heims­búskapnum, að því er segir á vef New York Times.

Þessar lækkanir koma illa við rússneskan efnahag og telur Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn að nauðsynlegt sé fyrir Rússa að draga saman seglin og hagræða, einkum hjá hinu opinbera. Olíu­útflutningur er stærsta útflutnings­grein Rússa og er efnahagur landsins háður ýmissi þjónustu í kringum olíuiðnað.


#Russia: Geopolitical risks & oil price volatility call for prudent monetary & fiscal policies. Read the story http://t.co/mS8aPcAVmS


— IMF (@IMFNews) August 3, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár