Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 34,5 prósent í janúar á milli ára

Um 62.700 erlendir ferða­menn fóru frá land­inu í jan­úar sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Það eru um 16.100 fleiri erlendir ferða­menn en í jan­úar á síð­asta ári. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu Íslands.

Aukn­ingin nemur 34,5 pró­sentum á milli ára, en adrei hafa fleiri ferða­mann mælst í jan­úar frá því að mæl­ingar Ferða­mála­stofu hófust.

Samkvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu eru Bretar og Banda­ríkja­menn helm­ingur ferða­manna.

Samkvæmt talningu Ferðamálastofu eru Bretar og Bandaríkjamenn helmingur ferðamanna.
Samkvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu eru Bretar og Banda­ríkja­menn helm­ingur ferða­manna.

Hátt í átta­tíu pró­sent ferða­manna í jan­úar voru af tíu þjóð­ernum. Bretar voru fjöl­menn­astir eða 34,6 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum, en næst fjöl­menn­astir voru Banda­ríkja­menn eða 14,9 pró­sent.

Þar á eftir fylgdu Frakkar (5,1 pró­sent), Þjóð­verjar (4,7 pró­sent), Japanir (3,4 pró­sent) og Danir (3,4 pró­sent).

Bretum, Banda­ríkja­mönnum og Frökkum fjölg­aði mest á milli ára en 5.110 fleiri Bretar komu í jan­ú­ar­mán­uði síð­ast­liðnum en í sama mán­uði í fyrra. Þá komu 2.607 fleiri Banda­ríkja­menn til lands­ins í jan­úar en árið áður og 1.225 fleiri Frakkar. Þessar þrjár þjóðir báru að mestu uppi aukn­ing­una sem varð í jan­úar eða um 55,5 pró­sent af heild­ar­aukn­ing­unni.

Á síð­ustu fimm árum hefur fjöldi ferða­manna í jan­úar nærri þre­fald­ast, en þar munar mestu um mikla fjölgun Breta, en fjöldi ferða­manna frá Bret­landseyjum hefur fimm­fald­ast frá árinu 2010.

Loks má geta þess að um 27 þús­und Íslend­ingar héldu utan í jan­úar, eða 1.800 fleiri en í sama mán­uði árið 2014. Það er aukn­ing upp á sjö pró­sent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár