Engin rök fyrir lokun leikskóla vegna Covid

Sótt­varn­ar­rök hníga ekki að því að leik­skólum verði lokað til að takast á við fjórðu bylgju Covid og þá myndi lok­unin valda mik­illi röskun á ýmis konar nauð­syn­legri starf­semi, þar á meðal starf­semi heil­brigð­is­stofn­ana.

Engin rök hníga að því að loka beri leik­skólum vegna fjórðu bylgju Covid-19 hér á landi. Upp­lýs­ingar frá Norð­ur­löndum benda ekki til að smit­hætta hjá börnum á leik­skóla­aldri sé aukin, þrátt fyrir að hið svo­kall­aða breska afbrigði virð­ist nú orðið útbreitt í sam­fé­lag­inu. Talið er ljóst að börn á leik­skóla­aldri séu mun minna smit­andi en þau sem eldri eru og þá myndi lokun leik­skóla valda umtals­verðri röskun á ýmis konar starf­semi í sam­fé­lag­inu, þar á meðal á starf­semi heil­brigð­is­stofn­ana.

Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Átta smit greindust inn­an­lands í gær en harðar sótt­varn­ar­að­gerðir tóku gildi á mið­nætti. Enn hefur ekki tek­ist að rekja upp­runa klasa­smits sem greind­ist um síð­ustu helgi og tutt­ugu manns hafa nú greinst með Covid-19 sem tengj­ast því smiti. Þórólfur segir að búast megi við frek­ari til­fellum næstu daga. Þannig tengj­ast þau átta smit sem greindust inn­an­lands í gær öll umræddu klasa­smiti.

Um er að ræða breska afbrigði veirunnar, sem er mun meira smit­andi og veldur alvar­legri veik­indum en fyrri afbrigði. Gera má ráð fyrir að mun fleiri sem smit­ast nú þurfi á sjúkra­húsinn­lögn að halda en verið hefur, allt upp í tíu pró­sent smit­aðra. Þá leggst breska afbrigðið einnig í frekara mæli á börn og þau smit sem greind hafa verið síð­ustu daga eru flest hjá börnum á grunn­skóla­aldri. Ekki stendur þó til að breyta for­gangs­röðun bólu­setn­inga og ekki er stefnt að því að bólu­setja börn yngri en 16 ára, frekar en verið hefur.

 

   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár