Paul Allen setur fúlgur fjár í baráttuna gegn Alzheimer

Auðkýfingurinn Paul Allen hefur ákveðið að styðja við rann­sóknir á Alzheimer sjúk­dómnum með peninga­framlagi. The Paul G. Allen Family Foundation, sjóður fjöl­skyldu hans, ákvað fyrir skemmstu styrkja rann­sóknir fimm rannsóknar­teyma um sjö milljónir Bandaríkja­dala.

Paul Allen hefur í gegnum tíðina styrkt veglega við bakið á þeim sem eru að rannsaka Alzheimer sjúk­dóminn og hefur oft rætt opinber­lega um erfiða baráttu móður hans við sjúk­dóminn.

Eignir Allen eru metnar á 17,4 milljarða Bandaríkja­dala um þessar mundir, en stór hluti þeirra er bundinn í verð­bréfum. Allen stofnaði Microsoft ásamt Bill Gates, ríkasta manni heims, árið 1975 en hætti hjá fyrir­tækinu átta árum síðar og hóf sjálfur að stunda fjár­festingar.

Allen er 62 ára og býr í Seattle, þar sem hann ólst upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár