Hafnarfjörður ætlar að hefja vinnu við hjólreiðaáætlun

Skipulags- og byggingarráð Hafnar­fjarðar hefur ákveðið að fela starfs­hópi með fulltrúum allra flokka að hefja vinnu við sérstaka hjólreiða­áætlun bæjarins. Örfá sveitar­félög hafa til þessa gert sérstakar áætlanir um hjól­reiðar.

Hafnfirðingar stefna að því að hefja vinnu við sérstaka hjólreiðaáætlun bæjarins á næstunni.
Hafn­firð­ingar stefna að því að hefja vinnu við sér­staka hjól­reiða­á­ætlun bæj­ar­ins á næst­unni. Mynd: Hafnarfjarðarbær

Skipulags- og byggingarráð Hafnar­fjarðar­bæjar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að stofna starfshóp með fulltrúum allra flokka, sem á að vinna að stefnu bæjarins varðandi hjól­reiðar, svokallaða hjólreiða­áætlun. Tillagan kom uppruna­lega frá Jóni Inga Hákonar­syni bæjar­fulltrúa Viðreisnar á fundi bæjarráðs á fyrsta degi júlí­mánaðar.

Samkvæmt fram­lagðri tillögu á heildstæð hjólreiða­áætlun að innihalda stefnu­mótun og sýn fyrir Hafnar­fjörð sem hjólreiðabæ, áætlun um uppbyggingu stofn­stíga hjólreiða og uppbyggingu hjóla­leiða almennt, áætlun um hjóla­stæði og hjóla­þjónustu í bænum, auk aðgerða­áætlunar, fjár­festinga­áætlunar og kynningar­áætlunar, til að auka hlutdeild hjólreiða.

Á fundi skipulags- og byggingar­ráðs síðasta fimmtudag, þar sem ákveðið var að setja vinnuna af stað núna strax, kom Sigurjón Ingvason áheyrnar­fulltrúi Viðreisnar í nefndinni því á framfæri að „brýn þörf“ væri á að hefja vinnu við hjólreiða­áætlun nú þegar, en ekki setja hana í bið þar til nýtt aðal­skipulag bæjarins taki gildi, sem yrði hugsanlega eftir 4-5 ár.

„Aðal­skipulag Hafnar­fjarðar hefur hingað til eingöngu nefnt hjól­reiðar í nokkrum setningum. Ætli bæjar­félagið að láta taka sig alvarlega þegar kemur að samgöngu­málum þá er mikilvægt að í vinnu við nýtt aðal­skipulag sé annars vegar sett fram heildarsýn í samgöngu­málum bæjarins og hins vegar áætlanir um hvernig á að fylgja þeirri sýn eftir og þá fyrir alla ferðamáta,“ sagði í bókun sem Sigurjón lagði fram á fundinum.

Hann sagði að upplegg að nýju aðal­skipulagi bæjarins þyrfti að taka á þessu máli „með afgerandi hætti til að tryggja framgang raun­verulegrar hjólreiða­áætlunar“, en hægt væri að hefjast handa við fyrstu áfanga hjólreiða­áætlunar áður en heildar­endurskoðun aðal­skipulags liggi fyrir.

Á þetta var fallist og lagt hefur verið fyrir sviðs­stjóra hjá bænum að leggja fram erindis­bréf um skipan starfs­hóps með fulltrúum allra flokka á næsta fundi ráðsins.

Hjólreiðaáætlanir víðar

Örfá sveitar­félög á Íslandi hafa þegar sett fram hjólreiða­áætlanir. Í höfuð­borginni Reykjavík var á síðasta kjör­tímabili samþykkt áætlun um fimm milljarða fjár­festingu fram til ársins 2025 í betri innviði fyrir hjólandi, með það að markmiði að fleiri sjái sér fært að fara ferða sinna á hjóli innan borgarinnar.

Skoðana­könnun frá Maskínu árið 2020 sýndi fram á að um 27 prósent Reyk­víkinga sögðust helst vilja fara hjólandi á milli staða dags daglega og í hjólreiða­áætluninni sagði að búa ætti svo í hag­inn að þessi 27 prósent gætu valið að ferð­ast með þeim hætti sem þau helst vildu, á hjóli.

Í Ísafjarðarbæ hefur sömuleiðis verið sett fram stefna um hjól­reiðar og innviða­uppbyggingu, sem hefur tölusett markmið um auknar hjól­reiðar innan bæjarins hjá mismun­andi aldurs­hópum. Stefnan er meðal annars sú að 40 prósent full­orðinna hjóli eða gangi til vinnu að minnsta kosti þrisvar í viku árið 2024, en þetta hlutfall var 34 prósent árið 2020.

Vinna við nýjar hjólreiða­áætlanir hefur svo einnig verið í gangi í fleiri sveitar­félögum á undan­förnum, til dæmis í Kópavogi, þar sem verið er að uppfæra fyrstu hjólreiða­áætlun bæjarins frá 2012. Einnig er vinna við gerð hjólreiða­áætlunar nýlega hafin í Reykja­nesbæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár