Vill endurskoða rétt manna til að taka óendanlega oft til máls á Alþingi

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sagði við þing­frestun í gær að hann vilji end­ur­skoða fyr­ir­komu­lag umræðna á Alþingi. Þar á meðal þyrfti að end­ur­skoða það fyr­ir­komu­lag að menn geti haldið umræðu um laga­frum­vörp gang­andi að eilífu.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis von­ast til þess að koma vinnu við end­ur­skoðun þing­skapa Alþingis sem lýtur að umræðum og skipu­lagn­ingu þeirra í far­veg strax á næstu dögum. Hann segir að það verði að taka til end­ur­skoð­unar „ein­kenni­lega fram­kvæmd“ and­svara á þing­inu og það fyr­ir­komu­lag að réttur manna til að taka til máls sé óenda­legur við aðra umræðu laga­frum­varpa og síð­ari umræðu þings­á­lykt­un­ar­til­laga. Yfir­stand­andi þing hefur þegar staðið yfir í um 865 klukku­stundir og því er ekki enn lokið

Alþingismenn hugsi yfir því hvernig störfum þingmanna er hagað

Alþingi hefur nú lokið þing­störfum fyrir sum­ar­hlé þings­ins en þing­menn koma saman á ný mið­viku­dag­inn 28. ágúst til að ræða og afgreiða þing­mál sem tengj­ast þriðja orku­pakk­anum. Við þing­frestun í gær þakk­aði for­seti Alþingis alþing­is­mönnum fyrir sam­starfið í ræðu sinni og fjall­aði um þær til­lögur sem liggja fyrir þegar þing­hald hefst að nýju í haust.

Þar á meðal fjall­aði Stein­grímur um frum­varp til laga um breyt­ingu á þing­sköpum sem liggur fyrir vegna nýsam­þykkra laga um gild­is­svið upp­lýs­inga­laga en þau taka nú til stjórn­sýslu Alþingis. Auk þess nefnir Stein­grímur aðra end­ur­skoðun á þing­sköpum sem lýtur að umræðum og skipu­lagn­ingu þeirra, auk ýmissa ann­arra atriða sem því teng­ist.

„Ég held að flestir alþing­is­menn séu nú eftir þing­haldið síð­ustu vikur nokkuð hugsi yfir því hvernig störfum okkar þing­manna er hagað sam­kvæmt gild­andi reglum og birt­ist þjóð­inni dag­lega í fréttum og beinum útsend­ingum og þá á hvaða braut Alþingi er komið, ekki síst í ljósi þess rýra trausts sem það nýtur um þessar mundir.“ segir hann.

Óendanlegur réttur manna til að taka til máls

Málþóf Mið­flokks­manna í umræðum um þriðja orku­pakk­ann á Alþingi í maí síð­ast­liðnum vakti mikla athygli en ræður, andsvör og svör við andsvörum um málið stóðu yfir í yfir hund­rað klukku­stundir og töl­uðu þing­menn Mið­flokks­ins stóran hluta þess tíma. Stein­grímur skor­aði ítrekað á þing­menn­ina að ljúka mál­þófi um málið til að hægt væri að hefja umræðu um önn­ur mál og til að koma í veg fyr­ir frek­­ari rösk­un á starfi þings­ins.

Í ræðu Stein­gríms í gær kom fram að við þing­mönn­unum blasi ein­kenni­leg fram­kvæmd and­svara sem verði að taka til end­ur­skoð­unar og færa í það horf sem til var stofnað í upp­hafi við afnám deild­anna 1991. Hann segir jafn­framt að það hljóti að koma til skoð­unar það fyr­ir­komu­lag að réttur manna til að taka til máls á þing­inu sé óend­an­legur. „Eins hlýtur að koma til skoð­unar það fyr­ir­komu­lag við 2. umr. laga­frum­varpa og síð­ari umr. þings­á­lykt­un­ar­til­lagna að réttur manna til að taka til máls sé óend­an­legur, að menn geti haldið umræðu gang­andi ad infinitum.“

Stein­grímur segir að um þessi atriði þurfi að ná víð­tækri sam­stöðu. „Mikil vinna liggur fyrir og meira og minna full­unnar hug­myndir sem verið hafa til umræðu í hópi þing­flokks­for­manna og nefnda sem skip­aðar hafa verið til að fara yfir þessi mál mörg und­an­gengin þing. Þar er við ýmsu hreyft sem væri til mik­illa bóta fyrir alla þing­menn. Ég von­ast til þess að koma þess­ari vinnu í far­veg strax á næstu dögum,“ segir Stein­grímur.

Eitt afkastamesta þing sögunnar

Stein­grímur bendir enn fremur á að þing­haldið hér á landi sé langtum lengra en á hinum Norð­ur­lönd­unum og víð­ast hvar í Evrópu. Þing­haldið nú á 149. lög­gjaf­ar­þingi hefur staðið yfir í um 865 klukku­stundir og því er ekki enn lokið. „Raunar sker Alþingi sig alger­lega úr hvað þetta snertir sem þjóð­þing, m.a. sé litið til smæðar þess. Þess vegna er rétt­mætt að varpa fram þeirri spurn­ingu hvort hlut­irnir þurfi áfram að vera svona,“ segir Stein­grímur.

Þrátt fyrir að afgreiðsla mála stöðv­að­ist með öllu um vikna bil vegna ágrein­ings þá segir Stein­grímur að tek­ist hafi að leiða ýmis stór mál til lykta. Á yfir­stand­andi þingi hafa alls 120 lög verið sam­þykkt og 47 álykt­anir. „Á ýmsa mæli­kvarða hygg ég að þetta sé orðið eitt afkasta­mesta þing sög­unnar — og þó ekki alveg búið, sam­an­ber það sem áður sagði um þing­hald síðar í sumar,“ segir Stein­grímur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár