Nýtt bóluefni gegn ebólu skilar fullkomnum árangri

Nýtt bóluefni gegn ebólu hefur skilað hundrað prósent árangri í fyrstu prófunum í Gíneu og standa vonir til að bóluefnið bindi enda á ebólu­faraldurinn sem geyst hefur í Gíneu, Síerra Leóne og víðar í Vestur-Afríku frá því í desember 2013. Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin, WHO, segir bóluefnið geta gjör­breytt stöðunni (e. possible game-changer) og sérfræðingar segja niður­stöður prófana afar merkilegar. Erlendir fjöl­miðlar fjalla um málið í dag, meðal annars BBC og The Guardian.

Í umfjöllun BBC segir að tilvist bólu­efnisins fyrir átján mánuðum hefði bjargað þúsundum manna sem látist hafa af völdum ebólu. Vonir standa til að með bólu­efninu megi koma í veg fyrir að ebólu­faraldur breiðist út aftur.


Til þessa hefur nýja bóluefnið skilað full­komnum árangri, en sérfræðinga WHO segja að hlut­fallið geti lækkað eftir því sem frekari gagna er aflað. Í umfjöllun The Guardian segir að bóluefnið sé árangur samstarfs vísinda­manna, lækna, styrktar­aðila og lyfja­fyrirtækja við að búa til bóluefnið gegn ebólu. Slíkt ferli tekur oft meira en áratug en hefur nú verið gert á tólf mánuðum, ef þessar fyrstu niður­stöður halda.


„Þetta nýja bóluefni, ef niður­stöðurnar halda, gæti verið silfur­kúla gegn ebólu og hjálpað við að binda enda á yfir­standandi faraldur og komið í veg fyrir að slík útbreiðsla gerist aftur,“ sagði Børge Brende, utan­ríkis­ráðherra Noregs, í dag en Noregur lagði til fjármagn við að búa til og framleiða bóluefni.


Verulega hefur hægt á útbreiðslu ebólu eftir að faraldurinn náði hámarki síðla árs 2014. Alls hafa komið upp 27,748 ebólu­tilfelli í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne fram til 26. júlí síðastliðinn og þar af hafa 11.279 dauðsföll verið skráð. Tala látinna er mögulega hærri, þar sem ekki er vitað um afdrif allra þeirra sem veiktust.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár