Norskur samningamaður segir SFS fara með rangt mál

Þaul­reyndur samninga­maður frá Noregi gagnrýnir málflutning SFS harðlega þegar kemur að varanlegum undanþágum í sjávar­útvegi. Þó að Norðmenn hafi hafnað aðild að ESB hafi Noregur náð slíkum samningum á sínum tíma. Slíkt hið sama eigi við Finnland og Svíþjóð.

Heiðrún Lind
Heiðrún Lind Fram­kvæmda­stjóri SFS. Mynd: Heiða Helgadóttir

Norð­maðurinn Torben Foss segir full­yrðingar Heiðrúnar Lindar Marteins­dóttur, framkvæmda­stjóra Samtaka fyrir­tækja í sjávar­útvegi (SFS), einfald­lega rangar þegar kemur að varanlegum sérlausnum sjávar­auðlinda í samningum Noregs við ESB, sem hún segir engin fordæmi fyrir. Þá undrast hann málflutning SFS þegar kemur að full­yrðingum um að varanlegar sérlausnir hafi ekki náðst hjá Noregi í sjávar­útvegi.

Segir yfir allan vafa hafið að ríkið fái undanþágu

Torben segir það ekki bara mögulegt að ná sömu niður­stöðu fyrir Íslendinga, heldur sé það hans mat að slíkt sé yfir allan vafa hafið að Íslendingum muni takast það að ná undanþágu fyrir íslensk stjórn­völd þegar kemur að sjávar­útvegi.

Nýjasta grein Torbens birtist í Morgun­blaðinu í dag og er ein af nokkrum í ritdeilum Norð­mannsins við framkvæmda­stjóra SFS. Torben var fulltrúi norska sjávar­útvegs­ráðuneytisins í samningum um EES og aðildar­samningum árið 1994 auk þess sem hann var ráðgjafi íslenskra stjórn­valda þegar samninga­viðræður hófust við ESB árið 2009.

Torben Foss Torben var full­trúi norska sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins í samn­ingum um EES og aðild­ar­samn­ingum árið 1994 auk þess sem hann var ráð­gjafi íslenskra stjórn­valda þegar samn­inga­við­ræður hófust við ESB árið 2009.

Ummæli Heiðrúnar sem hann svarar í grein sinni birtust í svargrein Heiðrúnar í Morgun­blaðinu um miðjan ágúst þar sem hún sagði: „Það er rangt sem haldið er fram að Noregi hafi með aðildar­samningi sínum tekist að ná fram einhverri varanlegri undanþágu fyrir sína sjávar­auðlind.“

Rímar þetta við málflutning hagsmuna­samtaka og stjórnmála­fólks sem telur engar undanþágur í boði í samningum við ESB og því sé ekki til mikils að vinna í samninga­viðræðum um aðild að Evrópu­sambandinu.

„Þessi fullyrðing þín er einfaldlega röng“

Torben segir orð Heiðrúnar ekki standast skoðun og skrifar í grein sinni sem birtist í dag:

„Þú dregur saman skilning þinn á ákvæðum samningsins með orðunum: „Það er (…) rangt sem haldið er fram að Noregi hafi með aðildar­samningi sínum tekist að ná fram einhverri varanlegri sérlausn um sína sjávar­auðlind.“ Það er ekki hægt að styðja þessi orð þín lögfræði­legum rökum. Þessi full­yrðing þín er einfald­lega röng.“

Torben útskýrir að fyrir samninga­viðræður við ESB á tíunda áratugnum hafi breytingar á hafrétti fært Noregi mun meiri hlutdeild í veiðum úr veiði­stofnum í Norðursjó og Barentshafi en áður hafði verið. Á sama tíma hafi Noregi tekist að minnka sókn þýskra, spænskra og breskra fiskiskipa á umræddum hafsvæðum. Þjóðin hafi ekki viljað gefa frá sér það sem hún nýlega öðlaðist og segir Torben í grein sinni:

„Við vissum að sjálfsögðu að ESB vildi festa dreifingu hlut­deildar aðildar­landanna í afla varanlega. Þessi vilji stað­festist í reglunni um „hlutfalls­legan stöðug­leika“. Það er ekkert út á þá reglu að setja en hún uppfyllti ekki kröfur okkar norsku samnings­mannanna um lögbindingu afla­heimildanna. Þess vegna fengum við samþykki fyrir að setja hlut­deildina inn í aðildar­samninginn. Svíþjóð og Finnland gerðu slíkt hið sama.“

Evrópudómstóllinn staðfest varanlega aflahlutdeild

Reglan um hlutfalls­legan stöðug­leika er orðin hluti af laga­grunni ESB en Torben bendir á að reglu­gerðum megi breyta. Það sé þó mikil­vægur varnagli þar á: „Það er hins vegar ekki hægt að breyta greinum aðildar­samningsins nema með samþykki allra aðila. Ísland getur að sjálfsögðu krafist þess að fá veiði­hlutdeild sína í öllum veiði­stofnum samnings­festa í aðildar­samningi.“

Torben bendir svo á að Evrópu­dómstóllinn hafi staðfest að afla­hlutdeildin sem er tilgreind í aðildar­samningum sé varanleg, „Svíþjóð og Finnland nota hlut­deildina þegar þau lönd skipta afla­heimildum sín á milli þar sem veitt er úr sameiginlegum stofnum,“ bætir hann við.

Torben, sem er sjálfur þaul­reyndur samninga­maður, skrifar svo: „Mitt mat er að það sé hafið yfir allan vafa að Íslandi bjóðist sams konar fyrir­komulag. Í samnings­ferlinu hefur Ísland að sjálfsögðu möguleika á að leysa úr öllum vafa­atriðum “

Skilur ekki málflutning SFS

Því næst undrast hann á málflutningi SFS og ávarpar framkvæmda­stjórann beint: „Heiðrún, ég get ekki með nokkru móti skilið að þið hjá Samtökum fyrir­tækja í sjávar­útvegi getið komið fram opinber­lega og haldið því fram, þvert á stað­reyndir, að Noregur hafi ekki náð fram varanlegum sérlausnum fyrir sinn sjávar­útveg.“

Það er mikill munur á milli sjónar­miða framkvæmda­stjóra SFS og Torbens, en í grein Heiðrúnar fullyrðir hún að engin dæmi séu um varanlegar undanþágur ólíkt því sem Torben segir: „Aðildar­samningur Norðmanna tryggði hvorki yfirráð Norðmanna yfir sjávar­auðlindinni né varanlega undanþágu nokkurs konar,“ skrifaði Heiðrún um miðjan ágúst og bætti við: „Ég hef ekki séð þau lögskýringar­gögn sem styðja þá túlkun þína, Torben, að Noregi hafi tekist að tryggja varanlega hlutdeild sína í helstu nytja­stofnum í lögsögu Noregs. Varanleikinn skiptir hér öllu máli.“

Meiningarmunur

Torben bendir á Evrópu­dómstólinn hefur staðfest regluna um hlutfalls­legan stöðug­leika sem tryggir að hlutfall hvers ríkis í sameiginlegum stofnum haldist á milli ára, jafnvel þótt heildar­afli (TAC) breytist. Á einfaldri íslensku þýðir þetta að niður­staða Evrópu­dómstólsins verndar umsaminn rétt ríkja gegn ásókn annarra aðildar­ríkja í fisk­stofna eða breytingum frá framkvæmda­stjórn ESB. Auk þess sem reglan um hlutfalls­legan stöðug­leika tryggir fyrirsjáanleika í sjávar­útvegi.

Heiðrún Lind lítur þó á málið með öðrum augum. Að þótt Evrópu­dómstóllinn verndi hlutdeild aðildar­ríkja færist ákvörðunar­vald um stjórn fiskveiða og tæknilegar reglur til Brussel og að reglunni megi breyta með samþykki aukins meirihluta í ráðherra­ráði ESB og því sé ekki um varanlega lausn að ræða í hennar huga.

Pólitíski veru­leikinn er sá að reglan hefur staðið óbreytt í áratugi og enginn vilji hjá aðildar­ríkjum ESB til þess að hrófla við henni að því er fram kemur á Evrópu­vefnum.

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TÞF
    Torfi Þór Friðfinnsson skrifaði
    já og í kvaða stöðu er ísland og EES samningurinn þegar og ef noregur gengur í ESB þa er orðinn slæm samnings staða fyrir Ísland því það er ekkert til sem heitir vina þjóðir eða frænd þjóðir þegar kemur að hagsmunum
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Þegar fólk er með mjög há laun, er það líklegra til að ljúga fyrir hagsmuni vinnuveitandans
    3
    • MMG
      Magnús Mörður Guðbjörnsson skrifaði
      Hún fær kannski gert upp í ,,Evrum,,. Er einhver hér sem getur útskýrt það, afhverju útgerðin fær að gera sína reikninga upp í evrum?
      0
  • Áslaug Sigurjónsdóttir skrifaði
    Væri ekki frábært að byrta þessa grein opinberlega þ.e. að sem flestir án þess að vera áskrifandi geti lesið hana. Kv Áslaug
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár