Halldóra: Vonandi upphafið af þeim bættu vinnubrögðum sem ríkisstjórnin hefur lofað

Sam­komu­lag hefur náðst á milli þing­flokks­for­manna og þing­for­seta um þing­lok í næstu viku. Í sam­komu­lag­inu felst einnig lof­orð um bætt verk­lag til fram­tíðar.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Einn hluti sam­komu­lags, sem for­menn þing­flokk­anna og for­seti Alþingis hafa gert sín á milli, snýr að því að bæta verk­lag til fram­tíðar varð­andi afgreiðslu þing­manna­mála. Þing­flokks­for­menn munu sam­kvæmt sam­komu­lag­inu hitta for­seta Alþingis í jan­úar næst­kom­andi og fara yfir stöð­una. Þau munu enn fremur hitt­ast með reglu­bundnum hætti eftir það.

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, segir í sam­tali við Kjarnann það vera í sjálfu sér áhuga­vert að minni­hlut­inn hafi þurft að knýja bætt verk­lag fram í þess­ari samn­inga­lotu. „Vonandi er þetta upp­hafið af þeim bættu vinnu­brögðum sem rík­is­stjórnin hefur verið að lofa,“ segir hún.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að þing­flokks­for­menn­irnir hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um þing­lok en sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins átti síð­asti þing­fundur fyrir jóla­frí að vera í dag. Það náði þó ekki fram að ganga og hafa samn­inga­við­ræður þok­ast áfram í vik­unni milli þing­flokks­for­manna og for­seta Alþingis.

Þing­störf halda áfram í dag og á mánu­dag­inn og er sam­kvæmt sam­komu­lagi búist við því að síð­asti dagur þings­ins á þessu ári verði á þriðju­dag­inn næst­kom­andi. Hver flokkur í stjórn­ar­and­stöð­unni fær þar með sitt mál til afgreiðslu fyrir jól.

Ánægður með samkomulagið

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í morgun að mörgu leyti vera ánægður með þetta sam­komu­lag. „Það sem mér finnst spenn­andi er að þing­flokks­for­menn taki stöð­una eftir ára­mót og hitt­ist með reglu­bundnum hætti eftir það,“ sagði hann. Þannig fengju þing­manna­mál meira vægi en honum hefur fund­ist ganga hægt hjá rík­is­stjórn­inni að efna yfir­lýs­ingar sínar um sam­vinnu.

„Svo verður bara að koma í ljós hvort þetta virki en þetta er ágætis byrjun. Það er gott að búa til vett­vang sem bygg­ist á trausti,“ sagði Logi.

Hann sagði jafn­framt að eftir þessa stuttu reynslu sína á þingi þá væri til­finn­ing hans sú að verk­lag á Alþingi væri að ein­hverju leyti fyr­ir­fram til­búið hand­rit sem bygg­ðist á tor­tryggni en hann taldi að full ástæða væri til að breyta því. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ættu að hafa sinn rétt og sömu­leiðis sína rödd. „Með því að gera þetta sam­komu­lag þá er það við­leitni til að breyta þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár