Stefna á þinglok í byrjun næstu viku

Allt stefnir í það að þing­lok verði á þriðju­dag­inn næst­kom­andi en sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins hefði þingi átt að ljúka í dag.

Þing­flokks­for­menn á Alþingi hafa kom­ist að sam­komu­lagi um þing­lok en sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins átti síð­asti þing­fundur fyrir jóla­frí að vera í dag. Það náði þó ekki fram að ganga og hafa samn­inga­við­ræður þok­ast áfram í vik­unni milli þing­flokks­for­manna og for­seta Alþingis. Skrifað verður undir samn­ing um þing­lok seinna í dag.

Þing­störf halda sem sagt áfram í dag og á mánu­dag­inn og er sam­kvæmt sam­komu­lagi búist við því að síð­asti dagur þings­ins á þessu ári verði á þriðju­dag­inn næst­kom­andi. Hver flokkur í stjórn­ar­and­stöð­unni fær þar með sitt mál til afgreiðslu fyrir jól.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans felst enn fremur í samn­ingnum lof­orð um breytt og bætt verk­lag varð­andi afgreiðslu þing­manna­mála. Þing­flokks­for­menn munu hitta Stein­grím J. Sig­fús­son, for­seta Alþingis, í jan­úar og fara yfir stöð­una.

Þingmannamál fái meira vægi

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í sam­tali við Kjarnann að hann sé að mörgu leyti ánægður með þetta sam­komu­lag. „Það sem mér finnst spenn­andi er að þing­flokks­for­menn taki stöð­una eftir ára­mót og hitt­ist með reglu­bundnum hætti eftir það,“ segir hann. Þannig fái þing­manna­mál meira vægi en honum hefur fund­ist ganga hægt hjá rík­is­stjórn­inni að efna gefin fyr­ir­heit um sam­vinnu.

„Svo verður það bara að koma í ljós hvort þetta virki en þetta er ágætis byrjun. Það er gott að búa til vett­vang sem bygg­ist á trausti,“ segir Logi.

Hann segir jafn­framt að eftir þessa stuttu reynslu sína á þingi þá sé til­finn­ing hans sú að verk­lag á Alþingi sé að ein­hverju leyti fyr­ir­fram til­búið hand­rit sem bygg­ist á tor­tryggni en hann telur að full ástæða sé til að breyta því. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ættu að hafa sinn rétt og sömu­leiðis sína rödd. „Með því að gera þetta sam­komu­lag þá er það við­leitni til að breyta þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár