Svartur mánudagur á mörkuðum - stærstu 300 fyrirtæki Evrópu lækka um 400 milljarða evra

Virði 300 stærstu fyrir­tækjanna í Evrópu á markaði hefur lækkað um 400 milljarða evra það sem af er degi, samkvæmt gögnum Reuters frétta­stofunnar. Hlutabréf í Evrópu hafa hríð­fallið í dag, rétt eins og gerðist í Asíu, en hlutabréfa­verð lækkaði um rúm átta prósent í Kína og hafa ekki lækkað meira síðan 2007. Beðið er eftir opnun bandarískra markaða, og búist er við miklum lækkunum þar líka.

FTSeurofirst300 vísitalan yfir 300 stærstu fyrir­tækin í Evrópu hefur hrapað niður, um 4,5 prósent, og útlit er fyrir mestu lækkun á einum degi frá því í mars árið 2009. Stoxx 600 vísitalan, sem inni­heldur líka minni evrópsk fyrirtæki, hefur lækkað enn meira, eða um rúmlega fimm prósent. Þar er útlit fyrir mestu lækkun frá árinu 2008.

Þá hefur verðbréfa­eftirlitið í Banda­ríkjunum neyðst til að loka fyrir viðskipti á afleiðu­markaði með hlutabréf í Nasdaq kaup­höllinni, og það áður en markaðir opna þar í landi. Í viðskiptum fyrir opnun Bandaríkja­markaða lækkuðu hlutabréf um fimm prósenta, sem er hámarkið samkvæmt reglum Wall Street.


Shangai Composite - 8.5% Nikkei - 4.6% Euro Stoxx -5% Dow Jones Futures - 667 points Welcome back from holidays!


— Maxime Sbaihi (@MxSba) August 24, 2015

FTSE100 vísitalan hafði lækkað um 4,5 prósent, og virði þeirra 100 fyrir­tækja sem eru inni í vísi­tölunni hafði lækkað um 60 milljarða evra. Þetta er í fyrsta sinn frá því í byrjun 2013 sem vísitalan fer undir 6000 stig, en hún stendur nú í 5.914 stigum. Þýska Dax-vísitalan féll um fimm prósent og franska CAC-vísitalan um tæplega fimm prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár