ORF Líftækni á góðri siglingu

Eftir áralangt uppbyggingar­starf er ORF Líftækni búið að ná góðum árangri á alþjóða­mörkuðum með vörur sínar. Frekari markaðs­sókn framundan.

ORF Líftækni, sem stofnað var árið 2001, er í mikilli sókn þessi misserin, eftir langt tímabil þar sem mikill kraftur hefur verið í rann­sóknir og þróun. Í fyrra hagnaðist fyrir­tækið um 161 milljón, en rekstrar­hagnaður nam 341 milljón.

Í tilkynningu frá félaginu, sem send var í kjölfar aðal­fundar félagsins, segir að sóknar­hugur sé nú í fyrir­tækinu, en tekju­vöxtur var tæplega 30 prósent í fyrra námu heildar­tekjur tæplega 1,6 milljarði króna.

Eins og áður segir, þá spannar saga félagsins tæplega tvo áratugi og mun fyrir­tækið fagna 20 ára afmæli 2021. Það fram­leiðir og selur sérvirk prótein, sem eru í BIOEFFECT húðvörum fyrir­tækisins, sem hafa notið vaxandi vinsælda á alþjóð­legum mörkuðum að undan­förnu.

Próteinin eru einnig notuð í læknis­fræðilegar rann­sóknir og líftækni, en grunnurinn í starfsemi fyrir­tækisins er þróun á próteinum í byggi, þar sem fræ í bygg­plötunni eru notuð til fram­leiðslunnar.

Að sögn Frosta Ólafs­sonar, forstjóra, markaði síðasta ár ákveðin vatnaskil í afkomu fyrir­tækisins. „Við erum búin að skila bókhalds­legum hagnaði frá árinu 2014, en nú náum við kröftugu stökki upp á við í afkomu félagsins í gegnum hagfellda samsetningu sölu­vaxtar og aukna stærðar­hagkvæmni í rekstrinum,“ segir Frosti.

Eitt stærsta skrefið í bættum rekstri og sókn félagsins með BIOEFFECT vöru­merkið, er að komast inn á sölusíðu Sephora, stærsta snyrtivöru­smásala í heimi. Þá hafa fleiri skref verið stigin til að dreifa vörunum meira, meðal annars í Asíu.

Frosti segir að ORF Líftækni sé fyrirtæki sem sé alþjóðlegt þekkingar­fyrirtæki, og að það sé mikilvægt að slík fyrirtæki geti vaxið og dafnað. „Það er mikilvægt að hlúa vel að þessum hluta hagkerfisins til að ungu fólki á Íslandi standi til boða störf hjá alþjóð­legum þekkingar­fyrirtækjum og hér geti lífskjör verið áfram með besta móti. Ísland hefur reynst verðmætur hornsteinn í ímyndar­tengdu samhengi fyrir ORF en rekstrar­aðstæður hérlendis hafa verið krefjandi á ýmsan hátt. Við hvetjum því stjórn­völd til að huga sérstak­lega að rekstrar­umhverfi fyrir­tækja þannig að alþjóð­legur þekkingar­iðnaður geti blómstrað á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár