Stefnir í að aksturskostnaður þingmanna verði hærri í fyrra en árið áður

Ásmundur Frið­riks­son er sem fyrr sá þing­maður sem til­greinir hæstan akst­urs­kostnað allra þing­manna. Alls voru tólf þing­menn með kostnað yfir einni milljón króna á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs. Um 74 pró­sent af öllum akst­urs­kostn­aði er vegna þeirra.

Sam­an­lagður kostn­aður vegna akst­urs þing­manna var 28,9 millj­ónir króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2019. Þar er um að ræða kostnað vegna akst­urs eigin bif­reiða, kostnað vegna bíla­leigu­bíla sem Alþingi greiðir fyrir þing­menn og kostnað vegna elds­neytis, aðgeng­is­kostn­aðar í jarð­göng og leigu­bíla.

Allt árið 2018 var kostn­að­ur­inn 30,7 millj­ónir króna. Það stefnir því í að kostn­aður vegna akst­urs þing­manna verði meiri í fyrra í krónum talið en hann var árið 2018.

Á milli októ­ber og nóv­em­ber­mán­aðar jókst kostn­að­ur­inn um 4,1 milljón króna. Einn þing­maður, Ásmundur Frið­riks­son, er með tæp­lega fjög­urra millj­óna króna akst­urs­kostnað og þrír til: Vil­hjálmur Árnason, Birgir Þór­ar­ins­son og Haraldur Bene­dikts­son er með akst­urs­kostnað yfir tveimur millj­ónum króna frá byrjun árs 2019 og út nóv­em­ber­mánuð sama ár.

Þetta má sjá í tölum um greiðslur til þing­manna sem birtar eru á vef Alþingis. 

Upplýsingar óaðgengilegar árum saman

Árum saman tíðk­að­ist það á meðal þing­manna að fá end­ur­greitt svo­kallað akst­urs­gjald vegna notk­unar á eigin bif­reið. Það er greitt sam­­kvæmt akst­­ur­s­dag­­bók þar sem þing­­menn halda utan um allan akstur á sínum eigin bif­­reið­u­m. ­Ferða­­kostn­að­­ar­­nefnd, sem heyrir undir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið, ákveður akst­ur­gjald í akst­­ur­s­­samn­ingum rík­­is­­starfs­­manna og rík­­is­­stofn­ana. Gjaldið skipt­ist í almennt gjald, sér­­stakt gjald og svo­­kallað tor­­færu­­gjald. Almenna gjaldið á við akstur á mal­bik­uðum vegum inn­­an­bæjar og utan, sér­­staka gjaldið á við akstur á mal­­ar­­vegum utan­­bæjar og tor­­færu­gjaldið mið­­ast við akstur við sér­­stak­­lega erf­iðar aðstæð­­ur, gjarnan utan vega og ein­ungis jeppa­­fært.

[adspot]Grunnur akst­­ur­s­gjalds­ins skipt­ist í fastan kostnað og breyt­i­­legan kostn­að. Í föstum kostn­aði voru afskrift­ir, skoð­un­­ar­gjald, bif­­reiða­gjald, ábyrgð­­ar­­trygg­ing og húf­­trygg­ing, en í breyt­i­­legum kostn­aði bens­ín, smurn­ing, olía, hjól­barð­­ar, vara­hlutir og við­­gerð­­ir. Greiðsl­urnar eru und­an­þegnar skatti. Samhliða því að greiðslur vegna notk­unar á eigin bif­reið hafa hríð­fallið á und­an­förnum árum hafa greiðslur vegna bíla­leigu­bíla hækkað mikið, enda var þeim til­mælum beint til þing­manna fyrir nokkrum árum siðan, af skrif­stofu Alþingis, að taka frekar bíla­leigu­bíla en að nota eigin bif­reiðar. Ástæðan var sú að það var talið spara fjár­muni og tryggja meira gagn­sæi í akst­urs­greiðslum. Skrif­­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­­leig­u­­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­­samn­ingi Rík­­is­­kaupa, um afslætti af gjald­­skrá bíla­­leig­u­bíla til að ná niður þessum kostn­aði enn frek­ar.

Fjöl­miðlar reyndu árum saman reynt fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fengu end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Á því varð breyt­ing í upp­hafi árs 2018 þegar það var fyrst gert opin­bert. Greiðsl­urnar reynd­ust afar háar og ollu mik­illi reiði í sam­fé­lag­inu. 

Nota miklu frekar bílaleigubíla

Á árinu 2018, sem var það fyrsta eftir að greiðslur til þing­manna voru gerðar opin­berar, stökk kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla upp í 19,3 millj­ónir króna sam­hliða því að kostn­aður vegna notk­unar eigin bif­reiða dróst veru­lega saman. Á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs var kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla aðeins meiri en allt árið 2018, eða um 20 millj­ónir króna.

Til við­bótar bæt­ist end­ur­greið­an­legur kostn­aður vegna elds­neytis­kostn­aðar, jarð­ganga sem kostar að fara í gengum og leigu­bíla. Alls nam sá kostn­aður 2,9 millj­ónum króna á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs, sem er aðeins minna en allt árið 2018, þegar hann var 3,1 millj­ónir króna.

Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs þing­manna hefur dreg­ist veru­lega saman frá því að ákveðið var að birta yfir­lit um hvað hver þeirra fær end­ur­greitt vegna keyrslu.

Árið 2013, sem var kosn­ingaár, var hann til að mynda 59,8 millj­ónir króna og ári síðar 51,5 millj­ónir króna. Kjarninn hefur áður sýnt fram á að akst­urs­kostn­aður þing­manna eykst til muna á kosn­inga­árum, sem bendir til þess að hluti þeirra sé að krefj­ast end­ur­greiðslu vegna akst­urs sem far­inn er í próf­kjörs- eða kosn­inga­bar­áttu.

[adspot]Sam­an­lagður kostn­aður á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs nær því ekki að vera helm­ingur af þeim kostn­aði sem féll til vegna keyrslu þing­manna á árinu 2013 þegar hann er bor­inn saman í krónum. Að raun­virði er mun­ur­inn enn meiri, en upp­reikn­aður kostn­aður árs­ins 2013, að teknu til­liti til verð­bólgu, er rúm­lega 66 millj­ónir króna.

Ásmundur í sérflokki

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, er sem fyrr sá þing­maður sem kostar skatt­greið­endur mest vegna akst­urs. Ásmundur er hættur að nota eigin bif­reið í vinn­unni, og fá end­ur­greiddan kostnað vegna þess, en leigði þess í stað bíla­leigu­bíla fyrir um þrjár millj­ónir króna á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs og fékk tæp­lega 700 þús­und krónur end­ur­greiddar vegna elds­neytis­kaupa. Þetta er 48 pró­sent aukn­ing á kostn­aði vegna akst­urs Ásmundar milli ára, þótt að des­em­ber 2019 vanti enn inn í töl­urnar frá því í fyrra.

Frá 2013 og út árið 2017 námu end­ur­greiðslur til Ásmundar alls 23,5 millj­ónum króna vegna notk­unar hans á eigin bif­reið, en hann sætti mik­illi gagn­rýni þegar töl­urnar voru opin­ber­aðar í upp­hafi árs 2018. Því hafa end­ur­greiðslur til Ásmundar vegna akst­urs verið 29,7 millj­ónir króna frá því að hann var kjör­inn á þing vorið 2013 og fram til loka nóv­em­ber­mán­aðar 2019.

Tólf þingmenn keyrðu fyrir meira en milljón

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, er með næst mesta heild­ar­kostn­að­inn, en alls keyrði hann eigin bíl, bíla­leigu­bíl og tók elds­neyti fyrir um 2,5 millj­ónir króna. Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, fylgir fast á hæla þeirra með akst­urs­kostnað upp á tæpar 2,5 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Haraldur Bene­dikts­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, er svo með akst­urs­kostnað upp á 2,2 millj­ónir króna. Þessir fjórir þing­menn eru þeir einu sem ná að vera með akst­ur­kostnað sem er yfir tveimur millj­ónum króna.

Tólf þingmenn fengu meira en milljón krónur greiddar í aksturskostnað:

  • Ásmundur Frið­riks­son 3,7 millj­ónir króna
  • Vil­hjálmur Árnason 2,5 millj­ónir króna
  • Birgir Þór­ar­ins­son 2,5 millj­ónir króna
  • Haraldur Bene­dikts­son 2,2 millj­ónir króna
  • Guðjón S. Brjáns­son 1,7 millj­ónir króna
  • Sigurður Páll Jónsson 1,7 millj­ónir króna
  • Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir 1,6 millj­ónir króna
  • Lilja Rafney Magn­ús­dóttir 1,3 millj­ónir króna
  • Líneik Anna Sæv­ars­dóttir 1,2 millj­ónir króna
  • Páll Magn­ús­son 1,1 millj­ónir króna
  • Halla Signý Krist­jáns­dóttir 1,0 milljón króna
  • Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir 1,0 milljón króna

Alls fór því 21,5 millj­ónir króna af þeim 28,9 millj­ónum króna sem akstur þing­manna kost­aði skatt­greið­endur á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs til ofan­greindra tólf þing­manna, eða um 74 pró­sent af öllum akst­urs­greiðslum. Umræddir þing­menn eru 19 pró­sent allra þing­manna.

Eðlisbreyting á notkun eigin bifreiða

Akstur á eigin bif­reiðum hefur, líkt og áður sagði, dreg­ist veru­lega saman á síð­ustu árum, eftir að ákveðið var að opin­bera hver kostn­aður vegna hans var í upp­hafi árs 2018. Á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs fengu þing­menn rúm­lega sex millj­ónir króna vegna notk­unar á eigin bif­reiðum. Sú upp­hæð var 8,4 millj­ónir króna 2018 en 29,6 millj­ónir króna árið 2017. Því hefur orðið algjör eðl­is­breyt­ing á end­ur­greiðslu kostn­aðar til þing­manna vegna notk­unar á eigin bif­reiðum.

Í raun eru það bara sex þing­menn sem virð­ast nota eigin bif­reið af miklum þrótti og fá end­ur­greiddan kostnað vegna þessa frá þing­inu. Fremstur í flokki fer Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, sem féll alls rúm­lega eina milljón króna end­ur­greiddar vegna notk­unar á eigin bif­reið á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2019. Sam­flokks­maður hans Vil­hjálmur Árnason hefur fengið rétt tæp­lega milljón króna end­ur­greiddar vegna notk­unar á eigin bif­reið frá byrjun síð­asta árs og út nóv­em­ber­mánuð. Vil­hjálmur notar bíla­leigu­bíla einnig af miklum móð sem skilar því að heild­arakst­urs­kostn­aður vegna hans er mun hærri en Páls, sem er með mjög lít­inn bíla­leigu­kostnað.

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, kemur þar á eftir með tæp­lega 900 þús­und krónur í end­ur­greiðslur vegna notk­unar á eigin bif­reið, Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hafði fengið 637 þús­und krónur í nóv­em­ber­lok, og Mið­flokks­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son (621 þús­und krónur) og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son (508 þús­und krónur) komu þar næst. Þessir fjórir þing­menn eiga það sam­eig­in­legt að not­ast lítið eða ekk­ert við bíla­leigu­bíla.

Ofan­greindir sex þing­menn sem keyra mest á eigin bif­reiðum, og eru 9,5 pró­sent af öllum þing­mönnum, fá 77,5 pró­sent af öllum end­ur­greiðslum sem Alþingi greiðir vegna notk­unar á eigin bif­reið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

akstursgreiðslur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár