Kostnaður vegna aksturs þingmanna eykst um fjórar milljónir milli ára

Vil­hjálmur Árnason er sá þing­maður sem taldi fram mesta akst­ur­kostnað á fyrri hluta árs­ins. Hann sker sig einnig úr þar sem hann notar nán­ast ein­vörð­ungu eigin bíl á meðan að aðrir þing­menn nýta bíla­leigu­bíla að uppi­stöðu.

Þingmenn lands­ins keyrðu fyrir alls 17,7 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Það er fjórum millj­ónum krónum meira en þing­menn keyrðu á fyrri hluta árs í fyrra, en vert er að hafa í huga að ýmsar ferða­tak­mark­anir voru í gildi á þeim tíma vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem tak­mörk­uðu ferða­lög þing­manna sem ann­arra og höfðu marg­þætt áhrif á þing­störf. Meðal ann­ars jókst tíðni þess að þing­menn sátu nefnd­ar­fundi í gegnum fjar­fund­ar­búnað umtals­vert á meðan að far­ald­ur­inn geis­aði.

Þetta má lesa út úr tölum um kostn­að­ar­greiðslur til þing­manna á fyrri hluta árs­ins 2021 sem birtar eru á vef Alþingis.

Allt árið 2020 keyrðu þing­menn fyrir 23,2 millj­ónir króna, sem var umtals­vert minna en árið 2019 þegar akstur þeirra sem greiddur var úr sam­eig­in­legum sjóðum kost­aði 30,2 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn var mjög svip­aður árið 2018, eða 30,7 millj­ónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 millj­ónir króna. Allar tölur eru á gengi þess árs sem við á.

Ef þing­menn keyra jafn mikið á síð­ari hluta árs­ins 2022 og þeir gerðu á fyrri hluta þess má ætla að kostn­að­ur­inn í krónum talið verði sá mesti frá því að Alþingi fór að birta tölur um akst­ur­kostnað opin­ber­lega, eða rúm­lega 35 millj­ónir króna. Vert er að taka fram að elds­neyt­is­verð var afar hátt á fyrri hluta þessa árs og það hefur haft áhrif á akst­ur­kostn­að­inn.

Vilhjálmur trónir á toppnum

Alþingi end­ur­greiðir þing­mönnum kostnað sem fellur til vegna akst­urs þeirra sem skil­greindur er vinnu­tengd­ur. Þing­menn­irnir þurfa að sækja þessar end­ur­greiðslur sér­stak­lega með því að leggja fram gögn sem sýna fram á akstur hafi átt sér stað. Greiðsl­urnar eru skatt­frjáls­ar.

Í þess­ari sam­an­tekt er akst­ur­kostn­aður sam­an­tal­inn kostn­aður Alþingis vegna notk­unar þing­manna á eigin bílum, leigu þeirra á bíla­leigu­bílum, elds­neytis­kostn­aður og annar til­fallandi kostn­aður eins og gjald í jarð­göng.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Sá þing­maður sem keyrði fyrir mest fé á fyrri hluta árs­ins 2022 var Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Heild­ar­kostn­aður vegna keyrslu hans var 1.114 þús­und krónur á tíma­bil­inu. Skammt á eftir kom Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, en sam­an­lagður kostn­aður hennar var 1.090 þús­und krónur á tíma­bil­inu.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks hefur verið sá þing­maður sem keyrt hefur fyrir mest fé á und­an­förum árum. Í fyrra nam sam­an­lagður akst­ur­kostn­aður hans 2,6 millj­ónum króna en hann hefur verið hóf­sam­ari í ár og keyrt fyrir 1.044 þús­und krónur á fyrri hluta árs. Sam­an­lagt hefur kostn­aður Alþingis vegna akst­urs Ásmundar frá því að hann sett­ist á þing árið 2013 numið um 35 millj­ónum króna.

Þeir þrír þing­menn sem raða sér í efstu sætin á list­anum yfir þá sem keyra mest eru allir þing­menn Suð­ur­kjör­dæmis. Sá eini utan þeirra sem keyrt hefur fyrir meira en eina milljón króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins er Þórarinn Ingi Pét­urs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en sam­an­lagður akst­ur­kostn­aður hans er 1.032 þús­und krónur á tíma­bil­inu.

Krafa um að kostnaðurinn yrði gerður opinber

Akst­urs­greiðslur þing­manna komust í hámæli í byrjun árs 2018 þegar for­seti Alþingis svar­aði í fyrsta sinn fyr­ir­spurn um þá tíu þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar vegna akst­urs fimm árin á und­an. Svarið var ekki per­sónu­grein­an­legt en í ljós kom að fjórir þing­menn hefðu þegið sam­tals 14 millj­ónir króna í akst­ur­send­ur­greiðsl­ur, sem var tæp­lega helm­ingur allra end­ur­greiðslna. Síðar stað­festi Ásmundur Frið­riks­son að hann væri sá sem keyrði mest.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­­­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­­­són­u­­­grein­an­­­leg­­­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­­­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­­­ar, sund­­­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­­­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­­­leig­u­bíla. Allt ætti að koma upp á borð­ið.

Það var gert og þær upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­­­anir um mög­u­­­lega sjálftöku þing­­­manna.

For­­sæt­is­­nefnd ákvað að bregð­­­ast við og allar upp­­­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­­­manna er nú birtur mán­að­­­ar­­­lega. Auk þess var ákvæði í reglum um ­­þing­fara­kostnað, sem fjallar um bíla­­­leig­u­bíla, gert skýr­­­ara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þing­­­menn séu að nota eigin bif­­­reið­­­ar. Breyt­ing­­­arnar náðu einkum til þing­­­manna sem falla undir svo­­­­kall­aðan heim­an­akst­­­­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­­­­lega um þing­­­­tím­ann. Það eru þing­­­­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­­­­ur­­­­nesjum, Vest­­­­ur­landi, Árnes­­­­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­­­­reið­um, sem kemur til end­­­­ur­greiðslu, varð eftir breyt­ing­­­arnar bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­­­metra­­­fjölda á skrif­­­stofa Alþingis láta umræddum þing­­­manni í té bíla­­­leig­u­bíl.

Mesta breyt­ingin sem orðið hefur síð­­ast­liðin ár er því sú að þing­­menn keyra nú mun meira á bíla­­leig­u­bílum en áður. Sú til­­hneig­ing hefur stökk­breyst eftir að akst­­ur­s­greiðsl­­urnar voru opin­ber­aðar í fyrsta sinn í byrjun árs 2018.

Vil­hjálmur Árnason er nú eini þing­mað­ur­inn sem sker sig úr hópnum þar sem hann not­ast nær ein­vörð­ungu við eigin bíl og fær svo end­ur­greiddan kostnað vegna þeirrar notk­unar frá Alþingi.

Þeir tíu þingmenn sem keyrðu mest á fyrri hluta ársins 2022:

Vil­hjálmur Árnason Sjálf­stæð­is­flokki 1.114.687 krónur

Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir Fram­sókn­ar­flokki 1.089.999 krónur

Ásmundur Frið­riks­son Sjálf­stæð­is­flokki 1.043.516 krónur

Þórarinn Ingi Pét­urs­son Fram­sókn­ar­flokki 1.031.844 krónur

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir Vinstri grænum 971.698 krónur

Birgir Þór­ar­ins­son Sjálf­stæð­is­flokki 958.615 krónur

Stefán Vagn Stef­áns­son Fram­sókn­ar­flokki 942.122 krónur

Haraldur Bene­dikts­son Sjálf­stæð­is­flokki 907.360 krónur

Ingi­björg Isaksen Fram­sókn­ar­flokki 841.957 krónur

Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir Fram­sókn­ar­flokki 827.980 krónur.

Bjarkey í efsta sæti yfir ferðakostnað innanlands

Kjarninn tók einnig saman kostnað vegna flug­ferða þing­manna inn­an­lands og kostnað sem Alþingi greiðir vegna gist­ingar og fæði. Sam­an­lagt flugu, gistu og borð­uðu þing­menn fyrir um 8,2 millj­ónir króna á fyrri hluta árs. Tæplega 80 pró­sent kostn­aðar vegna þessa er til­kom­inn vegna flug­ferða inn­an­lands. Þar, líkt og með akst­urs­kostn­að­inn, eru lands­byggð­ar­þing­menn fyr­ir­ferða­mestir þegar kemur að kostn­aði enda þurfa þeir að sækja vinnu sína til Reykja­víkur á sama tíma og þorri þeirra heldur heim­ili í heima­byggð.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna.

inn þing­maður kost­aði Alþingi meira en eina milljón króna vegna þessa á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Alls nam kostn­aður hennar vegna flug­ferða, gist­ingar og fæðis 1.062 þús­und krónum á tíma­bil­inu.

Þeir tíu þingmenn sem flugu/gistu/borðuðu mest á fyrri hluta ársins 2022:

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir Vinstri grænum 1.062.449 krónur

Ingi­björg Isaksen Fram­sókn­ar­flokki 971.865 krónur

Þórarinn Ingi Pét­urs­son Fram­sókn­ar­flokki 884.235 krónur

Njáll Trausti Frið­berts­son Sjálf­stæð­is­flokki 826.160 krónur

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir Fram­sókn­ar­flokki 746.902 krónur

Logi Ein­ars­son Sam­fylk­ing­unni 658.499 krónur

Halla Signý Krist­jáns­dóttir Fram­sókn­ar­flokki 398.095 krónur

Jódís Skúla­dóttir Vinstri grænum 281.197 krónur

Diljá Mist Ein­ars­dóttir Sjálf­stæð­is­flokki 254.425 krónur

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Viðreisn 214.725 krónur

Þrír þing­menn kom­ast bæði á list­ann yfir þá þing­menn sem keyra mest og þá þing­menn sem fljúga, gista og borða fyrir mest fé frá Alþingi. Bjarkey er sú eina sem nær að vera með ferða­kostnað inn­an­lands yfir tveimur millj­ónum króna á fyrstu sem mán­uðum árs­ins, en hún ferð­að­ist sam­tals fyrir 2.034.147 krónur inn­an­lands á tíma­bil­inu. Þórarinn Ingi kom þar næstur með með ferða­kostnað inn­an­lands upp á sam­tals 1.916.079 krónur og kostn­aður Ingi­bjargar flokks­systur hans var sam­an­lagt 1.813.822 krónur. Öll þrjú eru þing­menn Norð­aust­ur­kjör­dæmis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

akstursgreiðslur

Mest lesið undanfarið ár