Þrátt fyrir samkomubann standa akstursgreiðslur til þingmanna nánast í stað

Ásmundur Frið­riks­son er áfram sem áður sá þing­maður sem kostar skatt­greið­endur mest vegna akst­urs. Alls hafa fimm þing­menn rukkað Alþingi um yfir eina milljón króna í end­ur­greiðslur vegna akst­urs á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins.

Starfs­á­ætlun Alþingis var tekin úr sam­bandi frá 19. mars og fram í byrjun maí­mán­aðar. Afleið­ing­arnar urðu þær öllum málum sem voru ekki sér­stak­lega skil­greind sem COVID-19 mál var frestað, þing­fund­ar­dagar voru að hámarki tveir í viku, við­vera þing­manna var aðlöguð í sam­ræmi við sam­komu­bann og tveggja metra nálægð­ar­regl­una. Auk þess fóru allir nefnd­ar­fundir á þessum tíma fram í gegnum fjar­funda­búnað með þeim skil­yrðum að ekki yrðu fleiri að jafn­aði en tveir fundir í gangi á sama tíma.

Þrátt fyrir að þing­störfin hafi verið tak­mörkuð með þessum hætti, og að íslenskt sam­fé­lag hafi meira og minna verið án sam­neytis við aðra en nán­ustu fjöl­skyldu svo vikum skipti í vor þá var akst­urs­kostn­aður þing­manna á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2020 nán­ast sá sami og á sama tíma og í fyrra.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum um greiðslur til þing­manna frá byrjun árs og út júlí­mánuð.

Á móti kemur að þing­störfin teygð­ust vegna aðstæðna um nokkrar vikur og lauk ekki fyrr en seint í júní.

Fjögur prósent minni kostnaður en í fyrra

Í fyrra fengu þing­menn sam­tals 2,4 millj­ónir króna greiddar á því tíma­bili vegna notk­unar á eigin bílum, 11,1 milljón króna fyrir notkun á bíla­leigu­bílum og 1,8 millj­ónir króna vegna elds­neytis­kostn­aðar, greiðslna vegna notk­unar á jarð­göngum og töku leigu­bíla. Samtals var kostn­aður við akstur þing­manna þá 15,3 millj­ónir króna. Hann jókst þegar leið á árið og varð á end­anum 31,1 milljón króna allt árið 2019.

Á fyrstu sjö mán­uðum yfir­stand­andi árs hafa þing­menn fengið 2,9 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna notk­unar á eigin bílum, 10,3 millj­ónir króna vegna kostn­aðar við leigu á bíla­leigu­bílum og 1,5 millj­ónir króna vegna elds­neytis­kostn­aðar, greiðslna vegna notk­unar á jarð­göngum og töku leigu­bíla.

Samtals var kostn­aður vegna akst­urs þing­manna frá byrjun árs og til loka júlí­mán­aðar því 14,7 millj­ónir króna, eða um fjögur pró­sent minni en á sama tíma­bili í fyrra.

Ásmundur áfram dýrastur

Akst­ur­greiðsl­urnar koma til við­bótar við hefð­bundnar launa­greiðslur og ýmsar aðrar kostn­að­ar­greiðslur, en venju­legur þing­maður fær 1,170 þús­und krónur í laun á mán­uði. Auk þess getur þing­maður sem gegnir for­mennsku eða vara­for­mennsku í fengið álag ofan á þing­fara­kaupið.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Mynd: Bára Huld Beck
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Í til­felli for­manns nemur það um 175 þús­und krónum á mán­uði. Þá fá lands­byggð­ar­þing­menn hús­næðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslu, álag á hús­næðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslu, fastan greiddan ferða­kostnað í kjör­dæmi og fastan starfs­kostnað.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, er að venju sá þing­maður sem kostar mest vegna akst­urs. Samtals hefur Ásmundur keyrt fyrir tæp­lega 1,3 milljón króna það sem af er ári. Sá kostn­aður er ann­ars vegar vegna bíla­leigu­bíla og hins vegar vegna elds­neytis.

Ásmundur keyrði líka allra þing­manna mest í fyrra, eða fyrir alls 3,8 millj­ónir króna. Það þýðir að Ásmundur keyrði fyrir rúm­lega 320 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði í fyrra. Þorri þess kostn­aðar féll til á síð­ustu fimm mán­uðum árs­ins en frá byrjun árs 2019 og út júlí keyrði hann fyrir 1,4 milljón króna, eða mjög sam­bæri­lega upp­hæð og á sama tíma­bili í ár.

Þegar kostn­aður vegna akst­urs­greiðslna til þing­manna voru opin­ber­aðar í byrjun árs 2018 kom í ljós að Ásmundur hafði keyrt alls 47.644 kíló­metra á árinu 2017 og fengið rúm­lega 4,6 millj­ónir króna end­ur­greitt vegna þessa. Frá 2013 og út árið 2017 námu end­ur­greiðslur til Ásmundar alls 23,5 millj­ónum króna vegna notk­unar hans á eigin bif­reið.

Síðustu ár hefur því kostn­aður almenn­ings vegna akst­urs Ásmundar, sem býr á Suð­ur­nesjum, dreg­ist saman sam­hliða því að hann hefur notað bíla­leigu­bíla í stað þess að fá end­ur­greitt fyrir notkun á eigin bif­reið.

Fjórir aðrir yfir milljón

Fjórir aðrir þing­menn hafa keyrt fyrir meira en milljón krónur það sem af er ári. Næstur á eftir Ásmundi í kostn­aði kemur Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann hefur keyrt fyrir 1.194 þús­und krónur á tíma­bil­inu og er um að ræða kostnað við leigu á bíla­leigu­bílum og elds­neytis­kostnað.

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, kemur næstur með kostnað upp á 1.071 þús­und krónur. Vil­hjálmur sker sig úr í hópi þeirra sem keyra mest þar sem hann kýs, þrátt fyrir að skrif­stofa Alþingis hafi árum saman beint þeim til­mælum til þing­manna að taka frekar bíla­leigu­bíla en að nota eigin bif­reið­ar, að keyra eigin bíl og rukka svo fyrir þann kostnað sem af hlýst. Þetta er breyt­ing á akst­urs­hátt­erni Vil­hjálms, en í fyrra var 35 pró­sent af end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði hans vegna notk­unar á eigin bif­reið. Nú er hins vegar öll upp­hæðin sem hann hefur fengið end­ur­greidda vegna þessa.

Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er með akst­urs­kostnað upp á 1.039 þús­und krónur á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins og er hann allur til kom­inn vegna bíla­leigu­bíla og elds­neytis­kostn­aðar. Sigurður Páll Jónsson, þing­maður Mið­flokks­ins, er sá síð­asti sem nær að fara yfir milljón krónur í akst­urs­kostnað, en heild­ar­kostn­aður hans er 1.034 þús­und krónur á tíma­bil­inu. Hann er allur vegna bíla­leigu­bíla og elds­neytis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

akstursgreiðslur

Mest lesið undanfarið ár