„Hvernig stendur á þessari vitleysu?“

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar telur að líta þurfi á heil­brigð­is­kerfið í heild sinni og spyr hvort það sé „í alvöru til of mik­ils ætl­ast að stjórn­völd ráði við það verk­efni án þess að það bitni á heilsu og líðan fólks“.

Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Heil­brigð­istúrismi hefur verið að ryðja sér til rúms í íslensku sam­fé­lagi og því miður er það þannig að við erum í vax­andi mæli að flytja fólk úr landi í aðgerðir erlendis með til­heyr­andi óþæg­indum fyrir við­kom­andi og með óþarfa kostn­aði fyrir íslenskt sam­fé­lag.“

Þannig hóf Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í lið­inni viku.

Hún sagði að sam­kvæmt við­mið­un­ar­mörkum land­læknis ættu 80 pró­sent að kom­ast í aðgerðir innan 30 daga frá grein­ingu. „Ég er hrædd um að þetta hljómi eins og lélegt grín í eyrum þeirra fjöl­mörgu sem hafa setið föst á biðlistum mán­uðum og jafn­vel árum saman eftir til­teknum úrræðum.“

Mótstaða ríkisstjórnarinnar ekki til komin vegna þess að þekkingu skorti

Hanna Katrín sagði jafn­framt að ein sér­kenni­leg­asta birt­ing­ar­myndin af þess­ari stöðu væri „svo þessi heil­brigð­istúrismi“ þar sem fjöldi fólks væri fluttur út í aðgerðir þegar biðin er orðin of löng hér heima.

„Þessi útflutn­ingur á sér stað í vax­andi mæli í lið­skipta­að­gerðum, í efna­skipta­að­gerðum, svoköll­uðum offitu­að­gerðum og svo aðgerðum vegna endó­metríósu, þó svo að hér á landi séu sér­fræð­ingar sem geta sinnt þess­ari þjón­ustu allri.

Mótstaða rík­is­stjórn­ar­innar er ekki til komin vegna þess að það skorti þekk­ingu, færni eða aðstoð sem þessir aðilar geta boðið. Mótstaða rík­is­stjórn­ar­innar er heldur ekki til komin vegna þess að það sé ódýr­ara að flytja fólk í aðgerðir til útlanda. Nei, vax­andi útflutn­ingur á fólki í aðgerðir erlendis, sem í þokka­bót eru mun dýr­ari lausnir en þær sem eru í boði hér heima, er vegna þess að rík­is­stjórnin vill ekki semja við íslenska einka­að­ila og ein­hverra hluta vegna er sú mót­staða ekki fyrir hendi þegar verið er að fela erlendum einka­að­ilum þessar aðgerðir,“ sagði hún.

Hanna Katrín spurði hvernig stæði á „þess­ari vit­leysu“.

„Það er auð­vitað svo að það þarf að líta á heil­brigð­is­kerfið okkar í heild þegar tekin er ákvörðun um hver sinnir hverju. En er í alvöru til of mik­ils ætl­ast að stjórn­völd ráði við það verk­efni án þess að það bitni á heilsu og líðan fólks og að ég tali nú ekki um þá frá­leitu sóun fjár­muna sem hér er í gangi? Eigum við ekki í alvöru að fara að gera betur?“ spurði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár