Bæta ætti réttarstöðu brotaþola í kynferðisbrotamálum

Tillögur um bætta rétt­ar­stöðu brota­þola kyn­ferð­is­o­beldis voru ræddar á ráð­herra­nefnd­ar­fundi um jafn­rétt­is­mál í gær.

Þolendur í kyn­ferð­is­brota­málum ættu að fá upp­lýs­ingar um fram­gang máls síns, hvort hinn ákærði hafi verið settur í gæslu­varð­hald eða sleppt lausum og þeir ættu að fá að sitja í dóm­sal á meðan rétt­ar­höldum stendur. Þetta eru meðal ann­arra til­lagna sem lagðar fram voru í skýrslu um bætta rétt­ar­stöðu brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis.

Dóms­mála­ráð­herra mun hefja end­ur­skoðun á lög­gjöf og laga­fram­kvæmd í kjöl­far skýrsl­unnar. Til­lög­urnar voru til umfjöll­unar á ráð­herra­nefnd­ar­fundi um jafn­rétt­is­mál í gær, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Skýrslan var unnin af Hildi Fjólu Ant­ons­dóttur, rétt­ar­fé­lags­fræð­ingi, og fjall­aði um heild­stæðar úrbætur til að styrkja stöðu brota­þola í kyn­ferð­is­brota­málum. Staða brota­þola á Íslandi var borin saman við önnur Norð­ur­lönd.

Ísland eftirbátur annarra Norðurlanda

Nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýna fram á að Ísland og Danmörk séu eft­ir­bátar ann­arra Norð­ur­landa. Brota­þolar í Svíþjóð, Finn­landi og Noregi hafa sem dæmi rík­ari rétt til upp­lýs­inga, aðgangs að gögnum og þátt­töku í með­ferð máls fyrir dómi, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Í skýrsl­unni kemur fram að sam­kvæmt til­skipun Evr­ópu­þings­ins eru settir fram lág­marks­staðlar sem ætlað er að tryggja að brota­þolar fái við­eig­andi upp­lýs­ingar, stuðn­ing og vernd í gegnum rétt­ar­ferlið og gera þeim kleift að taka þátt í ferl­inu.

Erlendar rann­sóknir á upp­lifun brota­þola innan rétt­ar­kerf­is­ins sýna fram á að margt annað en ein­ungis nið­ur­staða máls­ins skipti þá máli, heldur einnig hvernig staðið sé að mál­inu og að þeir upp­lifi að máls­með­ferðin sé rétt­látt. Mik­il­vægt sé fyrir brota­þola að vera mætt af virð­ingu og skiln­ingi af fag­að­ilum, ásamt því að mik­il­vægt sé fyrir brota­þola að fá upp­lýs­ingar um hvernig rétt­ar­kerfið virki og hvernig mál­inu miði innan þess.

Lögreglu ber ekki skylda að upplýsa um framgang málsins

Á Íslandi er brota­þoli ekki aðili að saka­máli, að því er kemur fram í skýrsl­unni. Lögreglu er skylt að leið­beina brota­þola um rétt­indi hans og til­kynna honum ef rann­sókn máls er hætt eða það fellt niður, ásamt því að henni ber að rök­styðja ákvörð­un­ina ef brota­þoli krefst þess. Þá kemur fram að lög­regla skuli benda brota­þola á að hann geti borið ákvörðun hennar um að hætta rann­sókn undir rík­is­sak­sókn­ara.

Hins vegar ber lög­reglu ekki skylda að upp­lýsa brota­þola um fram­gang máls­ins. Í skýrsl­unni segir að því geti „farið svo að brota­þoli komi ein­ungis í eina eða tvær skýrslu­tökur og viti svo fátt um málið þar til lög­regla hættir rann­sókn máls­ins, vísar því frá, eða sak­sókn­ari ann­að­hvort fellir málið niður eða gefur út ákæru“.

Þar sem brota­þolar vita fátt um hvað fram hefur komið við rann­sókn máls­ins vita þeir hugs­an­lega ekki að upp­lýs­ingar sem þeir búi yfir skipti máli. Því geti aðkoma þeirra að rann­sókn mála aðstoðað við að upp­lýsa málið, segir í skýrsl­unni. Til að mynda gæti skipt máli að brota­þoli fái að bregð­ast við fram­burði sak­born­ings til að skýra mál sitt og/eða aðstoða við frek­ari öflun sönn­un­ar­gagna.

Á Íslandi hefur brota­þoli ekki rétt á að hlýða á fram­burð sak­born­ings þegar hann gefur skýrslu fyrir dómi. Ástæðan gefin fyrir því er að þar með sé komið í veg fyrir að fram­burður sak­born­ings hafi áhrif á fram­burð vitna. Samkvæmt skýrsl­unni geta brota­þolar í Finn­landi, Svíþjóð og Noregi þó gefið skýrslu fyrir dómi á undan sak­born­ingi til þess að koma í veg fyrir að skýrsla sak­born­ings hafi áhrif á fram­burð brota­þola.

Óeðlilegt að brotaþolar séu ekki aðilar að málinu

Í skýrsl­unni er vísað til íslenskrar rann­sóknar sem Hildur Fjóla Ant­ons­dóttur gerði árið 2018 um hug­myndir og upp­lifun þolenda kyn­ferð­is­brota. Flestir við­mæl­endur rann­sókn­ar­innar „töldu það óeðli­legt og frá­leitt að brota­þolar væru ekki aðilar að saka­mál­inu – saka­máli sem við­mæl­endur töldu vera sitt mál.“

Í skýrsl­unni segir enn frekar: „Það að vita lítið eða ekk­ert um fram­gang lög­reglu­rann­sóknar getur valdið brota­þolum miklum kvíða og óör­yggi og jafn­vel sett þá í hættu. Það getur skipt brota­þola sér­lega miklu máli að fá að vita hvenær búið er að til­kynna sak­born­ingi um að kæra liggi fyrir og hvenær sak­born­ingur er kall­aður í skýrslu­töku. Sumir við­mæl­endur ótt­uð­ust við­brögð kærða við kærunni þar sem þær töldu að hann gæti brugð­ist við með ógn­andi hegðun eða hefndum.“

Miklu máli skipti fyrir brota­þola að vita hvort sak­born­ingur sé settur í gæslu­varð­hald auk þess að vita þegar hann sé lát­inn laus. Í málum þar sem hinn ákærði hlýtur dóm sé mik­il­vægt fyrir brota­þola að vita „hvenær sá dæmdi hefur afplánun dóms, ef og þegar hann fær leyfi úr fang­elsi, er færður á áfanga­heim­ili eða hefur afplánað dóm.“

Niðurfelling máls getur haft alvarlegar afleiðingar

Nið­ur­fell­ing mála getur haft alvar­leg áhrif á brota­þola. Við­mæl­endur rann­sókn­ar­innar fyrr­nefndu lýstu áhyggjum sínum af því að þegar mál eru felld niður þá líti sam­fé­lagið svo á að brotið hafi ekki átt sér stað og að brota­þoli hafi verið að ljúga til um ofbeldið. Þetta getur valdið þeim álits­hnekki og haft áhrif á félags­lega stöðu og heilsu­far.

Sumir við­mæl­endur töl­uðu einnig um að þeir hefðu í kjöl­farið misst trúna á sam­fé­lagið og að nið­ur­fell­ingin hefði haft alvar­legri áhrif á þær og heims­mynd þeirra en ofbeldið sjálft, að því er kemur fram í skýrsl­unni.

Brotaþolar fá ekki að sitja inni í dómsal

Í skýrsl­unni kemur fram að þar sem þing­höld í kyn­ferð­is­brota­málum séu oft lokuð og brota­þolar hafi stöðu sem vitni, hafi þeir ekki rétt að sitja inni í dóm­sal til þess að fylgj­ast með rétt­ar­höld­unum.

Brota­þolar hafa mis­mun­andi rétt­ar­stöðu á Norð­ur­lönd­unum. Brota­þolar í Finn­landi og Svíþjóð eiga rétt á að ger­ast aðilar að saka­mál­inu, auk þess sem þeir hafa rétt á að hefja einka­refsi­mál ef sak­sókn­ari fellir niður málið. Á Íslandi, í Danmörku og Noregi hafa brota­þolar hins vegar rétt­ar­stöðu vitnis og hafa þar af leiðir tak­mark­aðan rétt á að hefja einka­refsi­mál.

Í Svíþjóð og Finn­landi geta brota­þolar lagt fram sín eigin ákæru­skjöl og sönn­un­ar­gögn, spurt ákærða og vitni spurn­inga, ásamt því að áfrýja mál­inu. Fram kemur í skýrsl­unni að í Finn­landi og Svíþjóð er þátt­taka brota­þol­anna í rétt­ar­höld­unum litin jákvæðum augum vegna þess að þeir þekki oft betur til máls­at­riða en sak­sókn­arar.

Sjaldgæft að þolendur sæki rétt sinn í einkamáli

Ætla má að brota­þolar á Íslandi séu ekki nægi­lega vel upp­lýstir um að þeir geti sótt rétt sinn í einka­máli, að því er kemur fram í skýrsl­unni. Enn fremur sé það ekki öllum raun­hæfur mögu­leiki því um sé að ræða tölu­verða fjár­hags­lega áhættu.

Því er lagt til að gjaf­sókn­ar­reglur séu útfærðar með þeim hætti að brota­þolar geti sótt um og fengið gjaf­sókn til að sækja slík mál.

Tillögur til úrbóta

Lagt er til að allir þolendur alvar­legra brota njóti bættrar rétt­ar­stöðu, ekki ein­ungis þolendur kyn­ferð­is­brota. Er varðar auk­inn rétt til upp­lýs­inga og þátt­töku á rann­sókn­ar­stigi er meðal ann­ars lagt til í skýrsl­unni að brota­þolar eigi rétt á að ráð­færa sig við rétt­ar­gæslu­mann á kostnað rík­is­ins áður en tekin er ákvörðun um að kæra málið til lög­reglu, að réttur þeirra sé sá sami og aðgangur til kærða nema lög­regla telji að það geti skaðað rann­sókn máls­ins.

Einnig er lagt til að lög­reglu sé skylt að upp­lýsa brota­þola um gang máls­ins, til dæmis veita upp­lýs­ingar ef hinn kærði er settur í gæslu­varð­hald eða lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi.

Lagt er til að réttur brota­þola til upp­lýs­inga sé auk­inn, til dæmis að brota­þola sé boðið að vera til­kynnt um nið­ur­fell­ingu máls og að brota­þoli geti borið vitni fyrir dómi á undan ákærða og geti setið í rétt­ar­sal í gegnum rétt­ar­höldin. Einnig eigi brota­þoli eða rétt­ar­gæslu­maður hans rétt á að leggja fram við­bót­ar­sönn­un­ar­gögn, brota­þoli geti ávarpa dóm­inn áður en rétt­ar­höldum lýkur og að hann hafi rétt til að áfrýja dómi.

Einnig er lagt til að fang­els­is­yf­ir­völdum beri skylda til að upp­lýsa brota­þola, ef hann svo kýs, þegar hinn dæmdi hefur afplánun refs­ingar, fær leyfi úr fang­elsi eða fluttur í opið fang­elsi.

Í skýrsl­unni er einnig lagt til að kanna skuli hvort æski­legt væri að gera „dóm­urum í saka­máli kleift að taka sjálf­stæða afstöðu til einka­rétt­ar­kröf­unnar og dæma í henni á grund­velli lægri sönn­un­ar­kröfu þó svo að ákærði hafi verið sýkn­aður.“ Ásamt því sem brota­þolar hafi rétt á gjaf­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár